Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

1. í júróvísjón að baki

21. maí 2008 klukkan 09:19
...og þvílíkt og annað eins!!!! Samansafn af ömurlegum lögum, ég var hins vega mjög glöð að "frændur" okkar kæmust áfram (Noregur og Finnland). En hvað er þetta með Bosníu-Hersegóvínu og Pólland og Rússland og Grikkland og Ísrael og og og já og eiginlega öll hin lögin sem komust áfram?? Skandall Dustin frá Írlandi skyldi ekki komast áfram.....Hissa textinn í laginu hans t.d. " we sorry for riverdance"......
En svona er júróvísjón held að lögin sem keppa á fimmtudaginn verði eitthvað skárri, ég er allavega búin að heyra nokkur og vil Portúgal áfram og svo lögin sem eru í aðalkeppninni á laugardag þá finnst mér Serbía vera með mjög fallegt lag.
EN lagið sem ég mun kjósa er frá Frakklandi Glottandi Alveg kominn tími á að frakkar fái að halda keppnina.

Heil og sæl..
Ó ég vildi að ég væri heima að horfa á þetta með þér... Mér finnst svo gaman að horfa á júróvision en maðurinn minn misskilur mig algerlega þessa dagana.... En hann þolir ekki Júróvision... Auk þess held ég að Svíar vinni þetta í ár og þar sem ég er í Svíþjóð sem er náttúrulega "Júróvision land form hell" þá verður maður nú að lifa þetta í botn..
Bestu kveðjur
Guðrún B.
#1
21. maí 2008 klukkan 09:36
 
Berglind
Já fyrsti í júróvision búin, mér fannst Israel og Pólland leiðinleg lög og þau hefðu ekki átt að komast áfram. Mér fannst Blegíu lagið skemmtilegt og hefði viljað sjá það áfram.
En svona er þetta bara, Noregur og Finnland komust áfram og það var gott. Ég var sammála Sigmari þegar hann sagði að það væri verst að ekki öll þungarokk lög væru á Finnsku. Finnar eru langflottastir í þungarokkinu og mér fannst hún Marie frá Norge alveg ágæt bara og lagið fínt. Það brustu líka út þvílík fagnaðarlæti í stofunni þegar þau voru lesin upp seinust (af Óskari Óðni stunðningsmanni norðmanna númer eitt, hann er ekki alveg viss hvort hann vilji að Ísland eða Noregur vinni á laugardaginn)
jæja njóttu annars í júróvisjón annað kvöld
kv Bebba
#2
21. maí 2008 klukkan 21:22

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.