Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

sunnudagskvöld

18. maí 2008 klukkan 22:20
æiæi æi!!!!!
Ég var búin að blogga slatta og það datt allt út!!! andskotinn!!!!! EN hér er ágrip af því sem ég var búin að skrifa!!!!Öskrandi

Við fórum í tveggja ára afmæli í gær. Vinkona Þórðar Loga hún Hekla bauð í afmæli upp í Hvítársíðu, það var aldeilis gaman. Björk móðir hennar hafði hrist fram úr erminni slatta af ýmsu góðgæti, þarna var t.d. heima tilbúið brauð, gúllassúpa (í 2 stórum pottum), salat, ostar, ávextir, súkkulaðikaka og ýmislegt annað góðgæti. Torfi (pabbi Heklu) grillaði pylsur ofan í smáfólkið og allir voru glaðir, börnin hlupu inn og út í leik og fullorðna fólkið spjallaði. Toppurinn var svo þegar kúnum var hleypt út í fyrsta sinn þetta vorið.

Fyrir utan þessa veislu hef ég verið að taka aðeins til í garðinum, þrífa, fara yfir próf og þvo þvott. Það er mikið að gera í vinnunni hjá Hauk og hann vann mestan part gærdagsins og svo fyrri partinn í dag. Framundan er júróvísjón vikan ógurlega og auðvitað vinnan en nú er að hefjast annasamur tími á þeim vígstöðvum.

Á þessari vef-útvarpsstöð
hér eru eingöngu spiluð júróvísjónlög....bara svona ef þið hafið áhuga Glottandi þið "klikkið" bara á "listen here" hægra megin á síðunni Hlæjandi
 
Berglind
Sæl og blessuð
júróvísjón-útvarpstöð, bara snilld.
Það verður víst rosa party á Dalvík, verst að maður skuli ekki vera fyrir norðan núna maður lifandi. Maður verður bara að reyna að skapa sína stemningu hérna á Eyrinni.
Náðu kvefinu úr þér í góðaveðrinu
kveðja Bebba
#1
19. maí 2008 klukkan 13:48

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.