Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

tíminn líður....

16. maí 2008 klukkan 08:49
Vá, hvað þessi vika hefur flogið áfram, það er bara kominn föstudagur.
Lokapróf í nytjaskógrækt var í gær og ég hef því nóg að gera við að fara yfir úrlausnir á milli þess sem ég er í vinnunni eða heima að mála....... jamm mála, ég tók upp á því að kaupa málningu í vikunni og klístraði henni á einn vegg, kemur ótrúlega vel út. Síðan stendur til að taka til um helgina og gera heimilið huggulegt.
Þórði Loga er boðið í afmæli um hádegisbil á morgun, hjá vinkonu sinni sem er ný orðin 2 ára. Verður örugglega skemmtilegt en það á að kíkja í fjósið og sjá nýfæddan kálf sem heitir Jökla og svo skilst mér að það eigi að leyfa kúnum að fara út í smá stund ef veðrið verður gott Glottandi

Ég er ekki búin að vera nógu dugleg í hreyfingunni þessa viku en ástæðan er vottur af kvefi og hálsbólga sem hefur verið angra mig...... en þetta kemur allt saman.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.