Ţađ eru komnar myndir
Kíkið á myndasíðuna "Skotland 2008" hér til hliðar....bara svona smá sýnishorn.
Ferðasagan gæti orðið svolítið löng, þið komið bara í kaffi til mín og fáið að heyra um þessa ferð og skoða fleiri myndir ![]()
Annars er lífið allt að færast í réttar skorður, við Þórður Logi vorum bara í rólegheitum um helgina, Haukur vann á laugardag og í gær og Stefán Snær skellti sér norður á föstudagskvöldið og kom aftur í gær.
Við Skotlandsgöngukonur og fjölskyldur hittumst á sunnudagskvöldið og borðuðum saman, vorum einnig með forláta skjávarpa í láni þannig að við gátum varpað myndunum upp á vegg.
Framundan eru annir í vinnunni en ég tek svo sumarfrí í tvær til þrjár vikur í júlí.
Nú er hafin ný niðurtalning en það er Hornstrandaferðin okkar Hauks. Við ætlum að ganga um Hornstandir frá Hornbjargsvita til Aðalvíkur og enda í Grunnavík, tökum 8 daga í herlegheitin.
Í dag er fyrsti vinnudagurinn minn í tæplega hálfan mánuð og ég byrjaði hann á spinningtíma í morgunsárið. Markmiðið er að hreyfa sig eins og verið hefur, a.m.k. þrisvar í viku, allt annað er plús og allt er þetta fært hér inn, samviskusamlega.