Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Ég er á leið í frí

30. apríl 2008 klukkan 11:16
Það er eins og það hafi gerst í gær að tekin var ákvörðun um að fara til Skotlands 1. maí 2008, það var við kvöldmatarborðið snemma í september sem þetta var ákveðið og nú er komið að því! Kannski kemst ég eitthvað í tölvu á kvöldin og get gefið ykkur skýrslu - og kannski ekki Glottandi
Þið fáið allavega ferðasöguna beint í æð þegar að því kemur Hlæjandi 
Þetta er kærkomið frí, ég verð í Skotlandi í viku og fer ekki aftur að vinna fyrr en 13. maí (eftir Hvítasunnu).
Hafið það gott.
 
Margrét
Góða ferð til Skotlands, heim aftur og allt þar á milli! :) Hlakka til að lesa ferðasöguna...verður örugglega hrikalega gaman hjá þér/ykkur...

Njóttu þess svo að vera í fríi! :)

Kv. Margrét
#1
30. apríl 2008 klukkan 16:48
Góða skemmtun í Skotlandi, vá hvað þetta er örugglega geggjuð ferð. Hlakka til að lesa ferðasöguna. Og ekki væri verra að sjá einhverjar myndir, þetta er alveg rosalega flott landslag sem þú ert að fara að ganga í.
kv Berglind
#2
30. apríl 2008 klukkan 18:45
oooo hvað er gaman hjá þér núna.... Skotland er frábært:):)
#3
01. maí 2008 klukkan 16:35
 
Rakel
Verð með þér í anda!! Góða ferð og njóttu vel.
Hlakka til að lesa hérna hvernig gengur :)
kv
Rakel
#4
01. maí 2008 klukkan 22:15
 
Margrét
Geri ráð fyrir að það megi segja "velkomin heim" núna! ;) Vonandi skemmtuð þið ykkur hrikalega vel þarna úti...hlakka til að lesa ferðasöguna! :)

Kv. Margrét
#5
08. maí 2008 klukkan 22:23

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.