Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

sprungin blađra....

29. apríl 2008 klukkan 10:14
Mér líður eins og ég sé sprungin blaðra.
Var á haus í gær.....fór í spinning, skrapp aðeins í heimsókn í grunnskólann (vantaði smá upplýsingar í ferilmöppuna). Vann eins lengi og ég komst upp með, náði í drenginn á leikskólann, prentaði út ferilmöppuna, eldaði kvöldmat og þá var ég sprungin á því!!!! Vá hvað ég er fegin, í morgun kenndi ég síðustu kennslustundirnar fyrir próf og svo ætla ég í Borgarnes í hádeginu að setja ferilmöppuna í póst!!!!
Það er íbúafundur í kvöld hér á staðnum, Haukur ætlar að fara en ég verð heima að pakka niður í tösku og þvo það sem ég ætla að taka með til Skotlands. Svo er það vinna á morgun og ég fer suður til Keflavíkur annað kvöld......og Skotland hinn daginn Hlæjandi
Auðvitað hittir það þannig á í vinnunni hjá mínum manni að það verður brjálað að gera á meðan ég verð úti að leika mér, Öskrandi helgar og kvöldvinna út í eitt....en tengdamamma ætlar að mæta á staðinn og passa upp á drengina sem er alveg frábært. Þá get ég andað rólega úti og kannski ekki með alveg eins mikið samviskubit......
Varðandi komment við síðustu færslu:
hehehe, já kennarrar voru að skrifa undir nýjan kjarasamning í gær, mest verður hækkunin 22% sem er fínt en þá koma allir hinir hóparnir í kjölfarið og fá enn betri samninga (ég er ekki að segja að það sé ekki gott fyrir þá!!)....er þetta ekki alltaf þannig? Þetta er endalaus hringavitleysa!
Je dúdda mía...
Umsagnirnar voru æði... Og þessir kúrsar sem þú valdir þér hljóma svakalega spennandi.. Ertu ekki til í að bæta svo við að koma með mér suður til Reykjavíkur öll miðvikudagskvöld á keramiknámskeið.. mig vantar "partner in crime" næsta haust í svoleiðis vitleysu.. Ég held ég meiki ekki að keyra svona í myrkrinu...
Jæjja ég vildi bara óskað þér og ferðafélögum þínum góðrar ferðar til Skotlands.. Vá hvað það verður gaman að sjá myndir og heyra ferðasögur þegar við skötuhjúin komum á Hvanneyri þann 10. júní...
Bestu kveðjur frá Svíaríki
Guðrún og Valdi
#1
29. apríl 2008 klukkan 16:10
 
Heiđa kennslukona og hundasnyrtir
HÆ HÆ.
Var að klára síðustu kennslustundirnar á þessum vetri í dag! Ég hefði aldrei meikað að vera líka í skólanum, þetta var nógu mikið brjálæði, svo ég tók rétta ákvörðun þar ;)
Langaði bara að óska þér góðrar ferðar og skemmtunar í Skotlandi!
Sjáumst svo kannski í lok júní en þá er 5 ára hittingur hjá mínum útskriftarárgangi á Hvanneyri.
#2
29. apríl 2008 klukkan 18:39
Gleðilegt sumar félagi,
ættingjar mínir skila kveðju til baka og biðja kærlega að heilsa.
Gakktu svo vel um Skotland.
Bestu kveðjur, Gyða
#3
29. apríl 2008 klukkan 22:09
 
Elín
Góða ferð til Skotlands og gangi ykkur vel í göngunni. Skálaðu fyrir mig ! ;O) Hipphipp...
#4
30. apríl 2008 klukkan 10:11

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.