Til hamingju með daginn!
Í dag á Þórunn vinkona mín Harðardóttir afmæli, til hamingju með daginn og takk fyrir mig ![]()
Ég er farin að sjá grilla í lok ferilmöppunnar, klára eiginlega allt um helgina, stefni á að skila möppunni á þriðjudag ![]()
Ég er búin að velja mér kúrsa fyrir næsta vetur:
Skapandi nám og kennsla í náttúrufræði og samfélagsgreinum
Náttúrufræði í grunnskólum - lykilþættir, verklegt nám og grunnhugtök
Nám og þroski barna, unglinga og fullorðinna (skildukúrs)
Námsmat og prófagerð
Fullorðnir námsmenn og aðstæður þeirra
Samtals eru þetta 50 ECTS eða 25 einingar í gamla kerfinu, ég mun nú aldrei taka þær allar enda ekkert öruggt að næg þátttaka náist. Fattaði reyndar að ég hefði þurft að vera búin með einn undanfara í áfanganum "námsmat og prófagerð" en ég get vonandi athugað það betur í haust þegar opið verður fyrir endurskoðun á valkúrsum.
Ég ætla að ígrunda það í sumar hvort ég:
a) tek námið eins róleg á og í vetur, einn kúrs á önn og þá er ég tvo vetur að klára.
b) minnka við mig vinnu t.d. niður í 60% og tek tvo kúrsa á önn og klára næsta vor.
c) tek einn kúrs á haustönn, tek svo frí í vinnunni í 3 mánuði eftir áramót og verð í þremur kúrsum á vorönn og klára næsta vor.
d) tek mér frí í vinnunni í þrjá mánuði á haustönn og verð í þremur kúrsum og tek svo einn kúrs á vorönn og klára næsta vor.
Semsagt það eru fjórir möguleikar í stöðunni og þetta þarf ég að hugsa vel og spyrja mig spurninga......t.d. hvað græði ég á þessu???