Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Gleðilegt sumar

24. apríl 2008 klukkan 16:05
Sumar og vetur frusu ekki saman hér á Hvanneyri ........... held það sé samt ekki nein ástæða til að klifra upp á næsta fjall og kasta sér fram af eins og Þórný nokkur  húsfreyja í Eilífsdal í Kjós gerði einhverntíman í fyrndinni. Samkvæmt sögunni átti hún ekki að hafa treyst sér að lifa af sumarið fyrst sumar og vetur frusu ekki saman...sú staðreynd var henni um megn svo hún ákvað að klifra upp á fjall og kasta sér fram af því, sem heitir eftir frúnni; Þórnýjartindur. Já svona var sagan sú  Brosandi

Hins vegar byrjaði ég sumarið á að fara í massa spinning tíma og í heitu pottana á eftir, ansi ljúft. Síðan kíktu Halli og Stefanía til okkar í dögurð (bröns á útttlensku) og núna á ég að vera að læra.......Það er værð yfir öllum á heimilinu í dag, stefnan er svo að grilla í kvöld.

Njótið dagsins!
Vá hvað þú ert nú alltaf dugleg að blogga og dugleg að hreyfa þig. Mikið hljómar þessi Skotlandsferð ykkar vel það verður aldeilis gaman hjá ykkur.

Ég held að fari bara að þínu fordæmi og grilla í kvöld, það er nú eiginlega ekkert sumarlegra en það.

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn í bloggheimum

Kveðja Drekinn stóri
#1
24. apríl 2008 klukkan 16:43
 
Margrét
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn! :)

Kv. Hestsgengið
#2
24. apríl 2008 klukkan 17:02
 
Rakel
Gleðilegt sumar!!
Bestu kveðjur frá Akureyris :)
#3
24. apríl 2008 klukkan 18:30
Aðalheiður Sigurðardóttirgleðilegt sumar Sigga mín. og góða skoska skemmtun
#4
25. apríl 2008 klukkan 08:37
 
Margrét
Gott að maður þarf ekki að hafa áhyggjur af þér, Sigga mín, í fjallgöngum sumarsins...að þú hendir þér fram af. Vissulega fljótlegri leið niður, en mæli ekki með henni.

Kv. Margrét
#5
26. apríl 2008 klukkan 08:56

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.