Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Ég er heima ađ skrifa í dag.....

23. apríl 2008 klukkan 12:07
....og þá er nauðsynlegt að líta aðeins upp frá því og glugga í gamla vitnisburði úr grunnskóla!!! Hérna er smá sýnishorn síðan ég var 9 til 12 ára.

Almenn umsögn á vorönn 1983: Kátur og glaður nemandi með ríka sköpunarþörf. Hættir til að ætla sér um of og vera hroðvirk.

Almenn umsögn á haustönn 1983: Jákvæð og skapandi. Mætti vera hljóðari við vinnu sína.

Almenn umsögn á vorönn 1984: Jákvæð og hugmyndarík. Hefur mikinn áhuga á skapandi vinnu en ekki nógu föst við hefðbundnar greinar.

Umsögn í teikningu vorið 1986: Meðhöndlar liti af þrótti og smekkvísi. Þarf að æfa sig í blýantsteikningu. Tekur mjög vel tilsögn.

Þar hafið þið það...ég ætla að halda áfram að skrifa......
 
Margrét
"Meðhöndlar liti af þrótti og smekkvísi"...það verður sem sagt engin þörf á því að ráða málara til að græja málningarvinnuna í sumar! Þú rumpar þessu af á nó tæm! ;) Og allt bendir til að liturinn hafi verið smekklega valinn ef þú hafðir eitthvað að gera með það!

Kv. Margrét
#1
23. apríl 2008 klukkan 14:08

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.