pælingar um veðrið
22. apríl 2008 klukkan 11:10
Jæja, núna eru 9 dagar í Skotlandsferð og þá er tími komin til að forvitnast um veðrið þar ytra. Í dag erum við að tala um hæglætisveður, rigningu og 12 stiga hita og þannig verður það næstu daga en á sunnudag á að létta til og sólin fer að skína. Mikið ætla ég að vona að það verði ekki rigning þegar við verðum á ferðinni þarna.
Fyrst ég er að tala um veðrið þá er fínasta veður hér, 9 stiga hiti og vindhraðinn 6 m/sek. Á morgun og hinn á sólin að skína en líka að rigna.......og hitinn 10-12 stig ![]()
Síðan er stóra spurningin ætli sumar og vetur frjósi saman? Vonandi!