Úff...gott að þú meiddir þig ekki, mín kæra...þú ert nú reyndar svo mikið hörkutól að þú verður enga stund að hrista þetta af þér...
Og það verður spennandi að sjá litinn á húsinu...bíð spennt. Þetta verður alveg hætt að vera Regnbogagata í sumar...bara 2 litir eftir af þessum upprunalegu 4...
Kv. Margrét
Ekkert aum og litagleði
21. apríl 2008 klukkan 11:41
Eymslin eftir fjallgönguna á laugardaginn eru lítil sem engin, fór í sund í gær og held að það hafi bjargað bakinu, finn ekki fyrir neinu og marið sem er rétt neðan við hné er komið út og er ekkert svo rosalegt. Þannig að sem betur fer er ég heil!
Fór í spinning í morgun og það var allt í lagi, ósk mín um að ég væri ekki illa meidd rættist, SEM BETUR FER.
Í gærkvöldi var einskonar húsfundur í parhúsinu sem við búum í.... það á sko að mála í sumar
við grilluðum og fengum okkur smá rauðvín með og djókuðum heilmikið með það hvaða lit við ættum að velja, púff það eru svo margir litir til!!! Niðurstaða náðist og verður það forvitnilegt.......
Fór í spinning í morgun og það var allt í lagi, ósk mín um að ég væri ekki illa meidd rættist, SEM BETUR FER.
Í gærkvöldi var einskonar húsfundur í parhúsinu sem við búum í.... það á sko að mála í sumar
Margrét
#2
21. apríl 2008 klukkan 20:06
Þú getur örugglega nálgast hana í íþróttabúðum eða bókabúðum, ég fékk mína hlaupabók í afmælisgjöf svo ég veit ekki nákvæmlega hvar hún fæst en fyrrnefndir staðir finnast mér líklegastir :)