Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Tónlistarferill minn svart á hvítu

17. apríl 2008 klukkan 11:37
Þegar við fórum norður um páskana þá tók ég slatta af dóti sem var geymt upi á lofti heima hjá  foreldrum mínum, þar kenndi ýmissa grasa, t.d. dúkkudót í úrvali, allskonar bollastell, gamlar námsbækur, gamlar ritgerðarbækur og einkunnablöð og vitnisburðir........ og ó mæ god!!!!!! Hér kemur eitt sýnishorn:

STÓRUTJARNARSKÓLI
TÓNLISTARDEILD
Sigríður J. Brynleifsdóttir, 2. bekk
hefur stundað nám við tónlistardeild Stórutjarnarskóla á fyrri önn 1982-1983.
Hljóðfæri: Orgel
UMSÖGN KENNARA:
Stundaði tímana vel, en sýndi lítinn áhuga og árangur þar af leiðandi lítill.
(Undirritað af)
Inga Hauksdóttir kennari - Sverrir Thorstensen skólastjóri

Fyndið.........HissaHlæjandi Síðan þá hef ég ekki snert hljóðfæri í þeim tilgangi að læra á það - og þá vitið þið það!
 
Margrét
Þú hefur bara greinilega snemma fundið út að þú varst ekki á réttri hillu þegar þú varst í þessu tónlistarnámi...! ;) Ert sko alls ekki verri manneskja fyrir vikið. :P

Það er kannski of seint í rassinn gripið, en ef þú vilt kíkja í kaffi eða einhverja hressingu eftir Hestfjallsgönguna, þá verðum við heima!

Kv. Margrét
#1
17. apríl 2008 klukkan 16:48
 
Átaksgellan
Hæ skvís, mér sýnist þú vera í góðum málum varðandi þyngdina en þetta hlaupaplan er algör snilld, það er í Hlaupahandbókinni 2008 eftir Gunnar Pál Jóakimsson.
#2
18. apríl 2008 klukkan 11:41

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.