Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

örbloggsblogg???

16. apríl 2008 klukkan 18:04
Þetta er nú að verða hálfgert örbloggsblogg!!! En svona er þetta nú bara, nú keppist ég við að reyna að klára verkefni í tengslum við skólann eða eins og einu stykki ferilmöppu en ég ætla að skila áður en ég fer til Skotlands, sem er jú eftir 15 daga.
Síðan á ég eftir að fara með nemendur í tvær vettvangsferðir og kenna tvo þriðjudaga þar sem ég fer aðallega í upprifjun á námsefni vetrarins.....og þegar þetta allt er búið þá er ég farin í FRÍ! Semsagt frí frá og með 1. maí og kem aftur til vinnu þann 13. maí - fersk og endurnærð, sem er eins gott því eftir miðjan maí og til 4. júlí verður mikill álagstími hjá mér í vinnunni. Ég stefni svo á meira frí frá og með 7. júlí.

Annars gengur allt vel, mataræðið er algjört æði og hreyfingin er einhver. Stefni á að ganga á Hestfjallið eftir vinnu á morgun.
DóraŢú ert svo dugleg frćnka :) Ţetta er örugglega bara í ćttini ég held ţađ hahah Góđa skemmtun í Skotlandi :)
#1
16. apríl 2008 klukkan 22:32

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.