grasagarđapćlingar og allt í drasli
13. apríl 2008 klukkan 15:50
Árshátíðin heppnaðist vel, vorum komin heim uppúr hádegi í gær. Dagurinn í dag er algjör letidagur en ég ætla reyndar að reyna að taka til og jafnvel skúra, gengur ekki að allt sé í drasli og skítugt, þannig að maður klessist þvílíkt við allt hér!!!!! Þvottavélin og þurrkarinn eru á fullu að vinna .... og ég slæpist bara í í tölvunni. Var aðeins að kíkja á staðsetninguna á hótelinu sem ég gisti á í Glasgow og var að finna út hvar grasagarðurinn er staðsettur og hvernig ég kem mér frá hótelinu og þangað. Lendi í Glasgow fyrir hádegi og er að hugsa um að nota þann dag til að fara í grasagarðinn hér getið þið séð afstöðuna. Jæja en þetta gengur ekki lengur, nógur er tíminn til að skipuleggja ferðina rúmlega tvær vikur í brottför....þannig að ég er farin að ryksuga og skúra!