Ferilmappan og kennslan...og gönguferđin
09. apríl 2008 klukkan 09:55
Það var að koma ferðaplan frá Skotlandsgöngukonunni
bara gleði. Í þessu ferðaplani er farið yfir alla dagana frá a-ö skondið en t.d. stendur þetta á einum stað í planinu: "Á miðri leið er staldrað við á sveitakrá (Beech Tree Inn) – þar sem hægt er setjast og fá sér í svanginn." - ekki leiðinlegt! Einnig fylgdi ferðaplaninu ansi góður útbúnaðarlisti:
Það eru þrjár vikur í ferðina og áður en ég fer þarf ég að gera ýmislegt, það helsta er að ég þarf að ljúka við gerð ferilmöppu í skólanum sem ég "þykist" vera í. Mér er lífsins ómögulegt að taka tíma frá fjölskyldunni til að vinna í henni - svo er bara alltaf nóg að gera ef ég er ekki í vinnunni. Verkefnin í vinnunni eru líka óþrjótandi. Þannig að ef ég ætla að vera í þessu námi þá bara verð ég að ætla mér að taka nokkra daga í frí til að leggja lokahönd á verkið, það er ekkert annað í stöðunni en þessari ferilmöppu ætla ég að vera búin að skila áður en ég fer til Skotlands, það er á tæru!
Varðandi kennsluna í Landbúnaðarháskólanum þá hefur mér tekist að halda áætlun. Ég er nánast búin að fara yfir allt efni vetrarins þannig að nú eru bara vettvangsferðir eftir (alls þrjár) og sex kennslustundir sem fara að mestu í upprifjun á efninu.
Annars er allt bara í góðu hér, hreyfingin og mataræðið eru á góðu róli
| Gönguskór, (göngustafir) | Íþróttaskór, sandalar | Bakpoki + Pokahlíf |
| Vatnsbrúsi | Regnfatnaður (Buxur og jakki), hlífðarföt | Fatnaður af ýmsum toga |
| Höfuðfat | Sundföt | Myndavél |
| Lítil regnhlíf | Mittistaska | Breiður heftiplástur |
| Hælsærisplástrar (Second Skin) | Lítil skæri | Verkjatöflur |
| Sólaráburður | Dagbók + skriffæri | Hnésokkur (teygjusokkur) |
| Millistykki fyrir Breskar innstungur | Góða skapið J |
Það eru þrjár vikur í ferðina og áður en ég fer þarf ég að gera ýmislegt, það helsta er að ég þarf að ljúka við gerð ferilmöppu í skólanum sem ég "þykist" vera í. Mér er lífsins ómögulegt að taka tíma frá fjölskyldunni til að vinna í henni - svo er bara alltaf nóg að gera ef ég er ekki í vinnunni. Verkefnin í vinnunni eru líka óþrjótandi. Þannig að ef ég ætla að vera í þessu námi þá bara verð ég að ætla mér að taka nokkra daga í frí til að leggja lokahönd á verkið, það er ekkert annað í stöðunni en þessari ferilmöppu ætla ég að vera búin að skila áður en ég fer til Skotlands, það er á tæru!
Varðandi kennsluna í Landbúnaðarháskólanum þá hefur mér tekist að halda áætlun. Ég er nánast búin að fara yfir allt efni vetrarins þannig að nú eru bara vettvangsferðir eftir (alls þrjár) og sex kennslustundir sem fara að mestu í upprifjun á efninu.
Annars er allt bara í góðu hér, hreyfingin og mataræðið eru á góðu róli
http://www.heidiblogg.wordpress.com
Heiđa
Hljómar spennandi :) Ertu að fara að ganga um Skotland?
#1
13. apríl 2008 klukkan 11:11
ég sjálf
jamm!!!!!
#2
13. apríl 2008 klukkan 15:38