Komin heim.....
05. apríl 2008 klukkan 12:29
Ráðstefnan var fín, mörg erindi, öll áhugaverð, mikið í gangi og mikið af nýju fólki. Frábært að hitta alla, t.d. Rakel og Herdísi og alla hina sem maður hittir allt of sjaldan. Á miðvikudagskvöldið hafði ég smá smugu til að kíkja í kaffi í Butru, sem var alveg frábært, borðin svignuðu undan veitingum og litli Valur er algjör dúlla. Takk fyrir mig Oddný og Gústi! ....og Elín ég kem bara fljótlega í spes heimsókn til ykkar í Riddaragarð....og Heiða....sko...ég kem bara aftur seinna og geng með þér um Hvolsvöll
Dagskráin á ráðstefninni var stíf þannig að eitthvað varð minna úr þeim fyrirheitum að ganga út um allt á Hvolsvelli. Gekk þó eina ferð í sundlaugina á fimmtudagsmorguninn, synti nokkrar ferðir. Það var reyndar ágætur kostur við þessa ráðstefnu að hún var í félagsheimilinu og maturinn var á hótelinu þannig að maður gekk þar á milli
í staðinn fyrir að grotna niður og fara ekki út úr húsi allan daginn.
En mikið er nú gott að vera komin heim, það á að taka því rólega í dag, skreppum kannski í eitt fjós sem er verið að taka í notkun í sveitinni..... síðan á morgun brunum við til Reykjavíkur á fund varðandi Hornstrandarferðina
sem við förum í, í sumar.
Já, það er mikið framundan.... vinna, vinna og vinna, ein árshátíð um næstu helgi í Stykkishólmi og svo er Skotlandsgangan handan við hornið
Dagskráin á ráðstefninni var stíf þannig að eitthvað varð minna úr þeim fyrirheitum að ganga út um allt á Hvolsvelli. Gekk þó eina ferð í sundlaugina á fimmtudagsmorguninn, synti nokkrar ferðir. Það var reyndar ágætur kostur við þessa ráðstefnu að hún var í félagsheimilinu og maturinn var á hótelinu þannig að maður gekk þar á milli
En mikið er nú gott að vera komin heim, það á að taka því rólega í dag, skreppum kannski í eitt fjós sem er verið að taka í notkun í sveitinni..... síðan á morgun brunum við til Reykjavíkur á fund varðandi Hornstrandarferðina
Já, það er mikið framundan.... vinna, vinna og vinna, ein árshátíð um næstu helgi í Stykkishólmi og svo er Skotlandsgangan handan við hornið
Elín
Hlakka til. Fæ kanski Skotlandsferðasögu beint í æð þegar þar að kemur ;O)
#2
07. apríl 2008 klukkan 08:59
Alltaf líf og fjör, hlátur og grín í kringum þig :)
kv
Rakel