Er búin að hanga út í glugga í allan dag. Hvar erturáðstefna framundan....
Ég mundi segja að mataræðið og hreyfingin séu bara á góðu róli þessa dagana, ef ég næ að hreyfa mig eitthvað minnst þrisvar í viku þá er ég sátt og þá líður mér líka best. Merkilegt hvað krafturinn eða orkan eykst þegar skammdegið er að baki.
Seinnipartinn brunum við sem vinnum hér, austur á Hvolsvöll, fundur í kvöld og ráðstefna á morgun og hinn. Kem ekki heim fyrr en á föstudagskvöld. Aðal áhyggjuefnið hjá eldri syninum er hvað skyldi verða í matinn þegar mamma er ekki heima.....pylsur í kvöld og skyr annað kvöld er lausnin, fyndið hvað þeir virðast alltaf verða hálf handarlausir þegar mamman er ekki heima!! EN ég er nú svo vond að ég vorkenni þeim ekkert, þeir hafa bara gott af því að taka smá æfingu í "mömmuleysi" áður en ég læt mig hverfa til Skotlands í HEILA viku.
Blogga lítið næstu daga - ætla að reyna að taka góðan göngutúr um Hvolsvöll "á milli atriða" á ráðstefnunni.....Aðalheiður......!!!
Já svona erum við alltaf með áhyggjur. En við erum líka allveg ómissandi.
Ég er allveg viss um að strákurinn reddar ser.Og gangi þer sem allra best.
Baráttukveðjur heðan úr danaveldi,,glingglo,,,,,,,,,,,,,,