Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Páskarnir í örfáum orđum

25. mars 2008 klukkan 08:48
Ekkert varð af bloggi um páskana, var bara ekkert í þeim gírnum. Til að gefa ykkur einhverja hugmynd um páskana á mínum bæ þá var þetta nokkurn veginn svona:
Miðvikudagur (eftir vinnu): fórum norður, kíktum á Steinunni og síðan til Sillu systur.
Fimmtudagur: Vorum í rólegheitum í Dalsmynni, lásum, horfðum á gamlar "Stiklur" og ég fór í gegn um allt gamla dótið mitt (nánar um það síðar).
Föstudagur: Við Stefán fórum á skíði með systrum mínum og sonum annarar - fyrir hádegi. Fórum suður (heim) þá var veðrið svo geggjað að við fórum í göngutúr. Bara næs.
Laugardagur: Fórum í sund, kíktum til Önnu Lísu og Binna, skoðuðum litla stubb sem fæddist 18. mars. Seinnipartinn fengum við gesti, bökuðum köku.
Sunnudagur: Fórum í göngutúr og í sund, virkilega næs. Elduðum svakalega góðan lambahrygg mmmm.
Mánudagur: Fengum gesti, við konurnar fóru í langan göngutúr (10 km +) karlarnir voru heima og elduðu. Fórum í leikhús, sáum "Þið munið hann Jörund" í Logalandi.
Dagurinn í dag: Vinna hjá mér, ferðalag hjá Hauk - hann er  á leið til Danmerkur á námskeið.

Jamm svona er þetta búið að vera hjá mér/okkur síðustu daga Glottandi
 
Margrét
Hljómar eins og þetta hafi barasta verið þrælfínir páskar! Vonandi hefur þú getað slappað vel af og hlaðið batteríin...

Kv. Margrét
#1
25. mars 2008 klukkan 12:43
 
Silla
Hmmmmm saknaði ykkar hjúts um páskana hahaha já og rósirnar mínar líka hahahhaa og já potturinn bíður og bíður bubblandi hahahha
endilega kikkið við tækifæri
kv silla.
#2
25. mars 2008 klukkan 14:40

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.