Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

tíminn líður....púst og þunglyndisblogg!!!!

18. mars 2008 klukkan 15:24
Ég held ég sé þunglynd....kem engu í verk.....GARG!!!! Búin að þvælast um á netinu, finna allskonar heimildir lesa og lesa en kem engu á blað, hugurinn er úti um allt og ég næ ekki að fókusa, djös, ansk, djös!!!! Hef verið að velta fyrir mér að minnka VEL við mig í vinnu næsta vetur svo ég geti einbeitt mér betur að náminu.... EN það er bara svo mikið að gera í vinnunni, fyrir utan peninginn....ansk, djös, djös, ansk..... Núan er ég að hugsa um að fara í LAAAANGAN göngutúr og hugsa næstu skref.

Það segja margir að apríl verði langur því það er ekki nema einn "frí"dagur þ.e. sumardagurinn fyrsti.... Það sem ég hlakka til í apríl er að þá mun ég fara á tveggja daga ráðstefnu á Hvolsvelli þar sem ég mun deila herbergi með Rakel....ohhhh hvað það verður gaman, getum aldeilis rætt málin elsku kerlingin mín! Svo viku síðar verður árshátíð LBHÍ , þá verður aldeilis tjúttað!

Já, svona er líf mitt í dag, kem engu í verk en hugsa um það sem á að gerast einhverntímann púst, púst! Þetta er bara ekki ég, ég er ekki neikvæð eða leið, það er ekki minn stíll en ahhhh jæja, ekki orð um það meir, lofa því að þið fáið ekki svona blogg á morgun.

Fermingarþemasaumóinn er í kvöld og þá verð ég að vera búin að koma mér í betra skap...ég nenni ekki þessu bulli!
Aðalheiður Sigurðardóttirhey láttu mig vita ef að þú ferð út að skokka á Hvolsvelli... þá ætla ég að vera út í glugga.

En það er ömó þegar að ekkert kemst í verk.. kannast við það.
Og þunglyndi er hræðilegt þegar að það skellur á manni í öllu sínu veldi, vona ég að þú sleppir alfarið við það, því að það er ekkert grín. úff úff..
#1
18. mars 2008 klukkan 18:21
 
Hjördís
Elskan mín hvað ég kannast við þetta, nema hvað ég er svona í janúar og febrúar. Þá má sko bara hengja mig upp í kústaskápnum, og taka svo fram hressa og endurbætta útgáfu í marsbyrjun.
#2
18. mars 2008 klukkan 21:21
Jamms og já. Þunglyndi og ekki þunglyndi. Þú getur þetta alveg úr því þú ert komin þetta langt inn í vorið. Segir bara eins og blessunin hún tengdadóttir mín sem á eftir tvð ár af sínu háskólanámi+út þennan vetur: Ég er að taka til í páskafríinu svo þetta lafi fram yfir vorpróf og GGGGGVVVVVVVVUUUUUUUUUUÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐ hvað ég hlakka til þegar þetta er búið, ennnnnnnnnnnnn þetta er svoooooooooooo skemmtileeeeeegt. Bestu kveðjur. Dísa (sem er nýbúin í síðasta námi að sinni)
#3
18. mars 2008 klukkan 23:55

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.