Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

grrrrrrrr!

18. mars 2008 klukkan 08:30
Stjörnuspá dagsins af mbl.is:
Vatnsberi:
Það er eitthvað sem ekki gengur upp í áætluninni. Stundum fara hugmyndir þínar ekki saman við raunveruleikann. Reyndu að aðlaga þær.
grrrrrrrr, ohhh í alvöru, trúi þessu ekki...grrr!!!
Ég er komin með "vorveikina" hún lýsir sér þannig að ég er ólýsanlega þreytt á morgnana - held það sé uppsöfnuð þreyta af völdum vetrarins sem brýst svona út. Þetta henti mig líka í fyrra en þá er bara eitt í stöðunni - það er að hvíla sig vel um páskana. Það mun ég að sjálfsögðu gera þegar við verðum komin að norðan, búin að fara á skíði. Talandi um skíði, spáin er víst ekkert mjög spennandi fyrir fimmtudaginn en eitthvað skárri fyrir föstudaginn - GARG!
Jæja best að fara að vinna, eftir vinnu ætla ég í gönguferð eða út að skokka og svo er saumó í kvöld, við eigum að mæta með fermingarmyndir af okkur ....íha..!
 
Rakel
SKO.....þegar stjörnuspáin er manni ekki hagstæði er sniðugast að "ignora" hana, gleyma henni og láta sem hún hafi ekki verið lesin......

Farðu farlega á skíðum og hvíldu þig líka vel
Bestu kveðjur úr snjónum í Svíþjóð, alveg hreinlega 10 cm lag yfir öllu í morgun.
Rakel
#1
18. mars 2008 klukkan 13:54

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.