sól sól skín á mig
16. mars 2008 klukkan 16:37
Helgin er búin að vera fín, mamma og pabbi komu á föstudagskvöldið og fóru í morgun.
Fórum öll á Ladda í gær og það var nú alveg meiriháttar.
Dagurinn i dag..... eftir að hafa tekið smá göngutúr með Hauk og Þórði í morgunsárið fórum við í sund - hitti sundlaugarvigtina góðu, allt gott að frétta af þeim málum.
Nú þegar sólin er farin að sýna sig svona eins og hún hefur gert undanfarna daga verður maður svo fullur orku og ferskur. Mér finnst einhvernveginn að nú sé vorið að skella á..... er á meðan er! Það eru ekki nema rúmlega sex vikur í Skotlandsferðina og það finnst mér alveg ótrúlegt.
Páskarnir eru alveg að koma, ekki nema þrír vinnudagar í þessari viku og svo páskafrí, við ætlum að kíkja norður á skíði í tvo daga en vera heima hjá okkur á páskunum sjálfum. Ég þarf að gera skurk í náminu mínu og þá er rétt að nýta fríið eitthvað í það. Jú og svo vilja kannski einhverjir heimsækja okkur um páskana.....um að gera. Við erum ekki boðin í neina/r fermingu/ar þess páska, þannig að við erum ekki með neitt "plan" fyrir utan skíðaferðina góðu.
Jæja best að hætta þessu og reyna að nýta tímann í lærdóm.