Tökum upp léttara hjal!
13. mars 2008 klukkan 09:24
Það er alveg greinilegt að lesendum mínum líkar ekki eitthvað væmið eða hugljúfar litlar sögur....engar athugasemdir.... þannig að í dag er það stjörnuspáin, sem er allt of langt síðan ég hef sett hér inn og reynt að túlka.
Vatnsberi: Líkami þinn þarf að hvílast, og hugur þinn þarf að vinna. Þú ert hugmyndasmiður dýrahringsins núna, svo það ætti ekki að reynast þér erfitt.
Aha, sko...í dag er fimmtudagur og þá leggst maður upp í sófa í kvöld og hvílir líkamann, horfir á sjónvarpið og hugsar upp kenningar er varða atburðarás "Aðþrengdra eiginkvenna". Algjör snilld! Reyndar er hugur minn sífellt að vinna - er t.d. núna að fara yfir ritgerðir nemenda minna, búin að fara eina umferð og er að fara yfir í annað sinn til að fullvissa mig um að ég sé að gefa rétt og sanngjarnt fyrir
Síðan er ein fluga búin að vera sveimandi yfir höfði mér í nokkra daga....veit ekki hvort hún hefur kjark til að setjast eða ég kjark til að leyfa henni að setjast!! .....flókið - en hér tala ég undir rós - læt ekkert uppi fyrr en hún sest endanlega.... eða kannski hristi ég hana af mér eins og ég geri oft með svona flugur...en þessi er ekkert óraunhæf, þetta snýst ekki um að ganga á Norðurpólinn eða neitt svoleiðis...nei, nú er ég raunhæf... (og líka betri helmingurinn).

Hjördís
Leggðu frá þér flugnaspaðann og gefðu flugunni hunang BZzZZzzzzzZZZ
#2
13. mars 2008 klukkan 18:54
svo vor ekki aðþrengdar í gær. vonandi lagðistu samt fyrir og gafst flugunni tækifæir til að verpa :)#3
14. mars 2008 klukkan 09:33
Kv. Margrét