Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

stöldrum aðeins við....

12. mars 2008 klukkan 09:35

Fór ekki út að hlaupa í gær, var að vinna til rúmlega sjö og þá var ég ekki í stuði til að skokka.... við borðuðum og svo kúrði ég með litla stubb.
Dagurinn í dag byrjaði vel, fór út um hálf sjö og skokkaði hringinn ásamt Höllu (löbbuðum líka slatta....tölum svo mikið skooo!!).

Set hérna inn litla sögu til umhugsunar. 
 
Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað.
Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli. Síðan
bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og skrifa það
fyrir neðan nafnið. Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau blöðunum til
kennarans sem fór með þetta heim og bjó til lista yfir hvern nemanda og
safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.
Síðan fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir. Þegar þeir lásu
þetta urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu
skrifað. Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu
máli. Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða
við foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu
ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.
 
Lífið hélt áfram.
 
Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn ákvað að
vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til hennar og
spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði talað
mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna
henni svolítið. Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var
það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn
hafði fengið honum fyrir mörgum árum. "Þakka þér fyrir að gera þetta, því
eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli" sagði móðir Magnúsar.
Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt
þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af því
sem þeim þótti vænst um.
Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún niður og grét, bæði syrgði
hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa snert nemendur sína með
þessu uppátæki.
 
Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að lífið
endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður.
Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu þér
mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér. Gerðu það oft áður en það
verður of seint.

Sýndu að þér er annt um vini þína. Mundu að þú uppskerð

eins og þú sáir. Mundu að þú ert mikilvægur einhverjum.
Vona að dagurinn verði þér fínn og sérstakur því þú skiptir miklu máli.

Knúskveðjur frá mér Koss Eigið góðan dag.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.