hvíld og streyta
05. mars 2008 klukkan 17:55
Ég hef verið að lesa það á bloggum allt í kring og líka orðið vör við það hjá fólki sem ég hitti t.d. í vinnunni að það eru allir orkulausir og þreyttir. Fólki finnst það ekki vera að ná þeim árangri sem það vildi, eiginlega lýsi ég þessu best með að segja að það er eins og það vanti neista. Ég fór áðan í Borgarnes og í íþróttamiðstöðinni settist ég aðeins niður og fór að glugga í eitthvert fitness blað - þar voru margar fínar greinar t.d. ein um hvað streyta getur haft slæm áhrif á líkamann, konur sérstaklega fitna vegna einhvers hormóns sem ég man ekki hvað heitir. Önnur grein fjallaði um ofþjálfun og fjallað var um það hvað hvíld er nauðsynlegur partur í allri vellíðan - æfa 3-4 sinnum í viku - MAX!!! Það er allt í lagi að sleppa því að púla og skella sér bara í heita pottinn
Eins og ég áðan, ég fór ekkert í salinn að púla heldur fór ég í slökun í ljósabekknum... sem er reyndar stórhættulegt!!!...ekkert má!!
Ég hef alltaf haft seinna atriðið sem fjallað var um í þessu blaði til hliðsjónar og geri mér vel grein fyrir hvað hvíldin er mikilvæg en það að ætla sér of mikið vissi ég ekki að hefði svona mikil áhrif - ég vissi jú að streyta hefði áhrif en ekki svona mikil eins og sýnt var fram á í þeirri rannsókn sem vitnað var til t.d. þegar fólk er með allt of mikið á markmiðslistanum þá framkallar það streytu..... ekki það að markmiðin mín í baráttunni við aukakílóin hafi framkallað streytu (eða það finnst mér ekki) þá er það frekar álagið sem er á mér í vinnu og í skóla sem er alls ekki gott.
Kæru átaksbloggarar og aðrir lesendur, slakið á, munið eftir hvíldinni og ekki ætla ykkur of mikið - ókey?

http://tvina.blogspot.com
Dísa Gests
Ó já það er streitan sem fer oft illa með fólk. Hún framkallar spennta vöðva og vöðvabólgu þegar fram líða stundir. Vöðvabólgan þrengir svo æðarnar og þá kemur þreytan og orkuleysið, rökrétt ekki satt? Ég segi enn og aftur-af biturri reynslu-farðu varlega mín kæra. Hlakka til að sjá þig í GBF á næstunni
#1
05. mars 2008 klukkan 22:31
Ein konan sem er með mér í zonta kennir í Verkmenntaskólanum. Hún sagði frá því að einn dimman vetrarmorgun hafi hún smalað nemendum sínum út undir bert loft í nokkrar mínútur og gefið þeim kost á að anda að sér fersku lofti og njóta þess að horfa á stjörnurnar sem sáust einkar vel þennan morgun.
Þannig að fegurðin í kringum okkur er líka slakandi fyrir sálina. Horfa bara svolitla stund á myndina í blogghausnum Bláklukkunnar.
Þannig að fegurðin í kringum okkur er líka slakandi fyrir sálina. Horfa bara svolitla stund á myndina í blogghausnum Bláklukkunnar.
#2
06. mars 2008 klukkan 09:03
Elín
Móttekið... Skal gert! og yfir til þín... ;O)
#3
06. mars 2008 klukkan 09:24
IB
Hér færðu kvitt frá mér :)
ertu ekkert á leiðinni Norður??
ertu ekkert á leiðinni Norður??
#4
06. mars 2008 klukkan 19:40