Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Hreyfa sig....og koma svo!!!!

04. mars 2008 klukkan 13:53
Í dag veð ég úr einu í annað í blogginu......
Ég hef ekki staðið mig nógu vel í hreyfingunni undanfarið..... og þó, fór í göngutúr á mánudaginn, skokk á þriðjudaginn og spinning á miðvikudaginn......svo í göngutúr í gær þá var sko mánudagur - tjahhh hvað er ég að röfla? Það er alls ekki slæmt að hreyfa sig þrisvar í viku - þó það mætti kannski vera dreifðara á vikuna en svona er þetta nú bara. Ég var búin að setja stefnuna á skokk í dag en mér sýnist veðrið ekki ætla að verða til friðs, rok og rigning úti - æi það er svona undir sæng veður Glottandi Ég er líka syfjuð og pakksödd en ég fór í hádeginu í mat til Ingu og Kela en í boði var saltkjöt og baunir mmmmmm.
En meira varðandi hreyfinguna en þá get ég sagt það í fréttum að ég er búin að kaupa mér árskort í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi sem þýðir að ég get farið í lyftingasalinn, í spinning og sund eins oft og ég vil í eitt ár og vitið þið hvað það kostar?? 25 þúsund krónur - legg ekki meira á ykkur - þetta er nú ekki svo mikið svo ég tali nú ekki um að stéttarfélögin eru mörg hver og bara flest sem ég veit um að styrkja meðlimi um eitthvað ákveðið á ári og minn styrkur fer langt með að dekka þetta. Nú er bara að vera duglegur að notfæra sér þetta. Ég ætla að halda mig við það að reyna að fara í spinning a.m.k. einu sinni í viku og síðan erum við fjölskyldan að fara 1-3 sinnum í viku í sund. Auk þess skokka ég tvisvar í viku og geng minnst einu sinni í viku - þá er ég komin með hreyfingu 4 sinnum í viku sem er fínt. Spinning tímarnir eru reyndar ekki alveg "hreinir" spinning tímar heldur er svona ca hálfur tíminn body pump (efri hluti líkamans) það er fínt þó mér finnist það að lyfta lóðum ekkert sérlega skemmtilegt en stundum þarf maður að gera það sem er ekki skemmtilegt Svalur

Svona lítur þetta út svona ca:
Mánudagur  Gönguferð
Þriðjudagur Skokk
Fimmtudagur Skokk
Laugard. eða miðvikud. Spinning/body pump

Við Skotlandsgöngukonur verðum svo að fara að vera duglegar að ganga eitthvað lengra og við verðum bara að fara að taka helgarnar í eitthvað svoleiðis. Svo veit ég að fleiri hafa áhuga að koma með í slíkar göngur sem búa hér á staðnum og í nágrenni svo það er bara um að gera að fara að "haska" sér af stað Glottandi
Það eru sko bara átta helgar til umráða fram að gönguferðinni í Skotlandi og þá er páskahelgin meðtalin. Já tíminn líður, ég verð áður en ég veit af úti í yndislegu umhverfi í skosku hálöndunum (nú er ég dreymin á svip)!

Hvað finnst ykkur um lokaþátt í forbrydelsen (glæpnum) úff, maður.....!!!!!!
 
Silla
Duglega kona.. það verður nú ekki af þér tekið!!!
Vertu svo dugleg í ræktinni...
kv Silla.
#1
04. mars 2008 klukkan 19:50
 
Ragnhildur Jónsdóttir
Þú ert svo sannarlega dugleg!
Það er rétt að árskortið í Borgarnesi er mjög ódýrt og aðstaðan er frábær, sérstaklega að hafa aðgang að Írisi sem getur hjálpað manni að losna við tennisolnboga, spjótkastaraöxl eða bara útbúa gott æfingaprógram. Fyrir utan hvað sundlaugin er góð. Algjör lúxus að hafa aðgang að þessu.
Glæpurinn... býður bara upp á framhald, sem er hið besta mál.
bk.
Ragnhildur
#2
05. mars 2008 klukkan 09:18

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.