Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

spinning, blóđfitumćling og kvöldiđ í kvöld

23. febrúar 2008 klukkan 15:42
Ég og Tedda skutluðumst í spinningtíma í morgun (eurovisionþema) svaka stuð. Eftir það fórum við á heilsugæslustöðina þar sem boðið var upp á blóðfitu- og blóðþrýstingsmælingu. Ég kom vel út úr blóðþrýstingnum en blóðfitan mætti alveg vera lægri, mældist 4,97 en er æskilegt í kring um 4 (miðað við minn aldur). Þetta er samt alveg í lagi en ég hef þetta á bak við eyrað. Hefði verið forvitnilegt að vita hvert blóðfitugildið hafi verið í byrjun september 2006 þegar ég var að byrja að umbylta mataræðinu.

Síðan er stóra kvöldið í kvöld..........GÓÐA SKEMMTUN, ALLIR!
Hér er byrjuð að myndast spenna fyrir kvöldinu í kvöld líka... við hjúin erum búin að ákveða að kíkja aðeins á barinn í tilefni dagsins m.a.s... ekki eitthvað sem ég geri mjög oft þessa dagana en maður verður nú aðeins að lyfta sér upp líka;) Ég verð að segja að mér finnst lagið sem Ragnheiður Gröndal syngur verða betra og betra eftir því sem ég heyri það oftar en ég vil samt annað hvort Eurobandið eða Merzedes Club til Serbíu... finnst það vera lög sem munu hafa mestan séns þarna úti... þó ég eigi svosem ekkert frekar von á að við komumst upp úr þessari undankeppni frekar en fyrri ár... maður má samt alltaf vona;)
Góða skemmtun í kvöld dúllan mín:D
#1
23. febrúar 2008 klukkan 16:02

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.