Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Spenningur......!!!

22. febrúar 2008 klukkan 09:04
Á morgun, laugardaginn 23. febrúar nánar tiltekið klukkan 20:10 mun ég sitja límd við sjónvarpsskjáinn. Það er fyrsti í júróvísjón þetta árið eins og ég kalla það, þá veljum við okkar framlag í þessa stórskemmtilegu keppni sem maður þarf að horfa á með ákveðnu hugarfari - tja og húmor.
Lögin þetta árið eru öll ágæt og geta öll sómt sér vel sem okkar framlag, ég held samt ef dr. Sposk fer þá verði ég að verða mér út um gleðipillur.... svo ég segi nú ekki annað. Hins vegar er alveg ljóst að lögin sem keppa annað kvöld eru öll misvel til þess fallin að fara í þessa keppni en ég veðja á að "Fullkomið líf" með Reginu og Friðrik eða "Ho ho ho we say hey hey hey" með Merzedes Club muni standa uppi sem sigurvegarar kvöldsins.
Lagið "Don´t wake me up" sem Ragnheiður Gröndal syngur er hins vegar lagið mitt, mér finnst það alveg frábært en að sama skapi er það ekki þetta týpíska júróvísjónlag og ekki heppilegt í keppnina þarna úti....

Já laugardagskvöldið verður afar áhugavert - hef ekki verið svona spennt fyrir úrslitum í keppninni hér heima í nokkur ár. Ótrúlega mörg góð lög þarna á ferð - held ég kaupi mér geisladiskinn, strax í dag!
 
Silla
Fullkomið líf!!! Það er málið.. allir að kjósa það og þú líka Sigga!!! hahaha mér finnst þetta þarna ho ho ho dæmi vera búið að mála sig svolítið út í horn, fullkomið líf ER fullkomið lag hahahhaha
jú það verður sko líka skellt UHU á rassinn og sest fyrir framan imbann til að horfa á þetta, það er engin spurning!!
Góða helgi!!
ÁFRAM FULLKOMIÐ LÍF...
#1
22. febrúar 2008 klukkan 15:33
 
Magga
Sko...Mér finnst nú persónulega frekar fúlt að fyrsti í júróvisjón hitti akkúrat á sama kvöld og skyldumætingarþorrablótið er hjá okkur Eyfa Kidda...Þetta gerðist líka þegar Sylvía Nótt fór út...man að maður frétti þetta um kvöldið eftir að úrslitin voru kunn...En, en...ég er annars sammála ykkur að Fullkomið líf á svo sannarlega að fara út.

Annars er ég forvitin að sjá hvað Gísli ætlar að gera...ætli það sé búið að klóna hann? Hann ætlaði að mæta á þorrablótið síðast þegar ég vissi...

Kv. Magga sem ætlar ekki að horfa á Laugardagslögin annað kvöld! :)
#2
22. febrúar 2008 klukkan 17:29

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.