pissssttttt ég veit um eina hreyfingu sem að hægt er að stunda þótt að veður séu válynd, og hjá sumum er sú hreyfing helst stunduð í vondum veðrum, til að ná yl í kroppinn. Varð að segja þér frá þessu fyrst að það stefnir í að vera kalt út mars. hehený vinnuvika á morgun
10. febrúar 2008 klukkan 22:09
Jæja, þá er þessi helgi senn á enda. Hef litið gert um helgina, allt fór á annan veg en ætlað var. Ekkert þorrablót - engin skíðaferð. Haukur var meira og minna að vinna í allan gærdag, við mæðginin hengum heima, þvoðum þvott, skruppum í pönnsur til Ingu og svo var "smíðað" eitt stykki snjóhús og virki úti í garði. Fékk lítinn frið til að læra eða vinna um helgina og er farin að sjá fram á annasama viku og kvöld EN það er alltaf eitthvað, HÞ á æfingu annað kvöld, HÞ fer suður í skólann á þriðjudagskvöld, bekkjarkvöld hjá SSF á miðvikudagskvöld og HÞ í skóla á fimmtudagskvöld....og ég að skila verkefni á föstudag sem ég er nú langt komin með en einhvernveginn þarf ég að finna tíma til að klára það. Síðan er SSF að keppa á móti um næstu helgi...FJÖR.
Það eru reyndar ein gleðitíðindi, ég er ekki lengur gjaldkeri badmintondeildarinnar!!!! Húrra, er held ég nærri búin að ganga frá lausum endum í því sambandi.
Var að lesa það einhversstaðar að það væri kuldapollur yfir okkur/landinu núna og það sem meira er að hann verður það líklega út mars!!!! Þannig að snjómokstur og vetrartíð er ekki nærri lokið. Þetta er reyndar gott fyrir gróðurinn þó maður sé nú hálfþreyttur á þessu. Ég fór í Borgarnes á föstudagsmorguninn á milli "veðra" það var reyndar andskoti hált og hvasst en samt var það besti tíminn til að fara... ég verslaði helling og fyllti á ísskápinn.... miðað við mjólkur, grænmetis og ávaxtamagn sem enn er til (ásamt matarbirgðum í frysti) þarf ég ekkert að versla fyrr en seinnipartinn í vikunni.
Matarmálin erum í ágætum gír en hreyfingin er ansi stopul vegna veðurs!!! Maður fer ekki út að skokka í yfir 20 metrum á sek eða í snjókófi. Ekki kemst ég í morgunspinningtímana vegna snjómokstursins...... Vonandi verður veður til að skokka á morgun
Það má alltaf vera bjartsýnn! og sýnist ekki veita af!

http://allamalla.bloggar.is
Aðalheiður Sigurðardóttir
pissssttttt ég veit um eina hreyfingu sem að hægt er að stunda þótt að veður séu válynd, og hjá sumum er sú hreyfing helst stunduð í vondum veðrum, til að ná yl í kroppinn. Varð að segja þér frá þessu fyrst að það stefnir í að vera kalt út mars. hehe#1
12. febrúar 2008 klukkan 13:24