Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

miðvikudagsblogg

06. febrúar 2008 klukkan 14:22
Var að kenna í morgun og guð minn góður hvað ég var í litlu stuði....örugglega alveg hundleiðinlegt að hlusta á mig- ekki hægt að segja að áhuginn hafi skinið út úr andlitum nemenda minna! Var að kenna um vistfræði skóga og þau höfðu ekki mikinn áhuga á því, þessir krakkar vilja bara læra um hvernig ÞAU rækta skóg, eitthvað um vélar og tæki (græjur) ekki grunninn á bakvið sem er nauðsynlegt að skilja....

En hvað um það, á morgun byrjar fræðaþing landbúnaðarins á Hótel Sögu, þetta er tveggja daga þing og dagskráin pökkuð. Ég ætla reyndar bara á föstudaginn, kemst ekki á morgun, þarf að nýta tímann í að undirbúa kennslu og vera til staðar fyrir synina eftir klukkan hálf fimm en fimmtudagar eru skóladagar hjá Hauk mínum og þá þýðir ekkert fyrir mig að vera að þvælast fyrir sunnan.

Kannski sé ég Gamla svepp á fræðaþingi...? var á því í fyrra....

Þórður Logi er heima með pabba sínum í dag, gubbupest er að hrjá hann í dag, vonandi gengur það fljótt yfir.

Varðandi stjörnuspána þá skil ég ekki hvað er í gangi þar....
Vatnsberi: Þú ert beðinn um að samræmast öðrum, sem þýðir að þú skalt fara í öfuga átt. Eyddu tíma í að skrifa, biðja eða hugleiða til að finna þitt eigið sjónarhorn.
Í gær átti ég að láta verkin tala og hætta að hugleiða og skrifa, ætli það sé stjórnmálamaður sem semur stjörnuspána á mbl.is?
Ég vona að nemendur þínir viti af því lufsuverki sem hangir við rætur trjánna, hinn svokallaði wood-wide-web og að trén fíla sig ekki nema hafa svoleiðis.
Góða skemmtun á fræðaþinginu en ég sit heima þetta árið. Var ekki pínd í að setja fram niðurstöður og bíð bara eftir að skoða af hverju ég missti þegar greinarnar koma á netið.
#1
06. febrúar 2008 klukkan 15:24

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.