Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

brrrrrrrrunakuldi

02. febrúar 2008 klukkan 09:56

Á opinberum mæli Veðurstofu Íslands sem er staðsettur hér á Hvanneyri var 19 gráðu frost klukkan 9 í morgun!!! Þrátt fyrir það ætla ég ásamt Þórunni Harðar að fara út og ganga stóra hringinn - maður dúðar sig bara vel, það eru ullarnærföt sem blífa við þessar aðstæður auk, lopapeysu, snjógalla, þykkum trefli, nokkrum lögum af vettlingum, húfum og ullarsokkum!
Opinberlega er þessi göngutúr farinn vegna undirbúnings vegna Skotlandsgöngu, jamm sko í gær voru nákvæmlega þrír mánuðir í þann atburð....ohhh hvað það verður gaman.
Enn og aftur takk fyrir kommentin konur, þið eruð alveg yndislegar og Silla þetta er jú málið - þú þekkir það ansi vel.

 
Silla
Já þekki þetta ansi vel.. maður á að huga vel að sér og sínum :) Maður veit víst aldrei ævina fyrr en öll er og á meðan allir eru heilbrigðir þá er allt gott!!!
Kv Silla
#1
02. febrúar 2008 klukkan 21:59

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.