Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Janúar er búinn að vera erfiður mánuður

31. janúar 2008 klukkan 10:02
Ég hugsaði heilmikið um námið mitt í gærkvöld. Ég held ég sé að láta reyna á ákveðið "þanþol" þessa dagana, nú skal ég setja dæmið upp á einfaldan hátt:
Ég er í 90% vinnu hjá Vesturlandssógum (tímabundið í 90% jan-apríl)
Ég kenni tveggja eininga áfanga í Landbúnaðarháskólanum, ca 10-15% vinna
Ég er sjálf í Kennaraháksólanum að taka 10 einingar, ca 66% vinna
Vinnan sem ég er í er: 90+15+66=171%
Auk þess....
á ég tvo syni 2 og 12 ára
mann sem er í fullri vinnu + það að vera að vinna extra mikið vegna ófærðar sem er búin að vera viðloðandi í meira en mánuð, sem þýðir eiginlega 200% vinna + það að vera í námi sem hann er að klára á þessari önn, jibbí!
Við eigum heimili með öllu sem fylgir því, við reynum að stunda heilsurækt, hvort fyrir sig tvisvar í viku.
Ég er í tveimur stjórnum en er sem betur fer að fara að fá mig lausa vonandi í næstu viku úr annarri þeirra.
Já, janúar hefur verið erfiður og mjög mikið álag á okkur öllum.
Er þetta heilbrigt......ég veit ég er í svartsýniskasti en er þetta þess virði?  Um helgina mun ég taka ákvörðun varðandi námið, minnka það niður í 5 einingar - ég verð þá bara lengur að þessu. Við erum ekki það rík að við getum leyft okkur að ég geti minnkað vinnuna niður í 40-50% hvað þá að ég taki mér frí frá vinnu í eitt ár til að klára námið, nei ég verð bara að reikna með að taka það á þremur árum.... En eins og ég segi, ég ákvað í gærkvöld að pæla í þessu um helgina.
......EN svo áðan þá las ég stjörnuspána (mbl.is) og þetta þykir mér alveg ótrúlegt.....ekki það að ég láti stjörnuspár stjórna lífi mínu:
Vatnsberi: Þín tegund bjartsýni er blind - það er betra en fullkomin sjón. Þannig sérðu meira en aðrir í aðstæðum. Gerðu ráð fyrir að allt munu ganga upp og það mun.
Hvað er málið.......?
 
Heiða kennslukona og hundasnyrtir
Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að ég ákvað að taka ekki neitt á þessari önn! Það var víst nógu erfitt að taka 5 einingar með öllu sem maður er í en 10 einingar finnst mér helv. yfirdrifið - skil eiginlega ekki alveg skipulagninguna á þessu námi...... Allavega þar sem það er sérstakt álag að byrja kennslu - sem þýðir að ég er örugglega í svona 150% starfi núna (þú ert sennilega að komast að þessu líka núna) þá ákvað ég að sleppa skóla í bili - það væri einfaldlega ekki geðheilsunnar virði. Gangi þér vel með þína ákvörðun, en vá hvað ég hef mikinn skilning ef þú ákveður að minnka aðeins við þig :)
#1
31. janúar 2008 klukkan 11:42
Ása Dóra Finnbogadóttir.....ég skil þig fullkomlega elsku vinkona.......en spurningin er hvort þessi snjóþungi og myrkur og kuldi er ekki að hafa einhver áhrif á konuna......kannski er dálítið til í því sem er í stjörnuspánni - en málið að er að finna það í hjartanu hvað maður vill gera......svo kemur svarið reyndar stundum ef maður dregur djúpt andann - lokar augunum og biður um að það komi!!!!

Prófaðu !!!

kv. vinkona í baráttunni ;o)
#2
31. janúar 2008 klukkan 15:32
 
Silla
Það kemur alltaf upp leiði í mann annað slagið og það er bara eðlilegt.... það er heldur EKKERT til sem heitir SÚPERMAMMA og SÚPERHÚSMÓÐIR...... neibb, er hreinlega bara ekki til.. nú þarft þú að setjast niður kona góð og forgangsraða... HVAÐ VILTU??????? HVERT STEFNIR ÞÚ?? mundu líka að ALLT SEM ÞÚ HUGSAR.......... ÞAÐ VEX!!!
Þú ert rosalega dugleg og mundu það... ég styð þig í öllu því sem að þú ákveður!!
kv Silla.
#3
31. janúar 2008 klukkan 17:18
 
Rakel
Skógarbændur í Svíþjóð verða reglulega fyrir áföllum vegna þess að trén þeirra fjúka um koll. Það er aðallega rauðgrenið þeirra sem er svona viðkvæmt fyrir áföllum. Minni sömu skógarbænda er afar takmarkað vegna þess að staðfestar tölur sýna að þeir planta samt rauðgreni aftur þó svo að aðrar tegundir standist vindinn betur. Þetta tala kennarar okkar mikið um og ein þeirra sýndi okkur smá ferli sem hægt er að nota til að fara í gegnum ákvarðanatöku. Hún vildi meina að skógarbændurnir vissu ekki af aðferðinni : )
Við ákvarðantöku er gott að svara eftirfarandi spurningum:

Hvert er vandamálið?
Hver eru markmiðin – hverju ætlar þú að ná?
Hver eru gildi mín – hvernig er forgangsröðunin?
Hver tekur ákvörðunina?
Hverjir eru valkostirnir?
Hverjar verða afleiðingarnar?

Vona að þetta hjálpi þér mín kæra.
#4
31. janúar 2008 klukkan 19:54
 
Edda
Duglega stelpa.
Lífið er til að hafa gaman að því líka þannig að þú þarft fyrir mörgu að hugsa.
Ekki gleyma sjálfri þér, þó svo þú sért bara að hugsa þessa fáu mánuði fram í tímann.
Baráttukveðjur að norðan
#5
31. janúar 2008 klukkan 23:15
Aðalheiður SigurðardóttirÞetta er heljarinnar verkefni sem að þú ert í Sigga mín, og margt sem að þarf að hugsa út í og plana. Ég vona að þú takir ákvörðun sem að þú ert sátt við....
Eitt var mér sagt þegar að ég fór í nám í kennó... Rykið og skíturinn fer ekkert og börnin geta alveg borðað skyr og brauð oftar en einu sinni í viku.... Þetta er ekki nema í stuttan tíma bara 4 mánuðir eftir fram að prófum. Þú átt góða að sé ég hér fyrir ofan, um að gera að nýta sér þann stuðnig sem er í boði, þú getur svo vonadi launað greiðan til baka þegar að þín törn er búin. Bara að koma með annan vinkil á málinu. En eins og ein benti á þá er svona mikið vinnuálag ekki þess virði að fórna geðheilsunni fyrir. En þú veist best hvað þú þolir getur og mátt.
Bestu kveðjur að sunnan Heiða
#6
31. janúar 2008 klukkan 23:17

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.