Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

ó sólemíóóó!!!

30. janúar 2008 klukkan 17:02
Núna á ég að vera að nýta tímann til að lesa og læra en ég kem mér bara ekki að verki, held það sé góða veðrið! Jamm góða veðrið, núna er 8 gráðu frost og stillt, snjór yfir öllu og til að toppa allt þá skein sólin í dag sem minnir mann bara á sumarið!

Núna er sá árstími að koma þegar flestir þurfa að fara að ákveða sumarfríið, Haukur kom með blað þess efnis heim úr vinnunni í vikunni. Það er allavega ljóst að hann VERÐUR í viku fríi í júlí og aðra viku í ágúst, hitt kemur síðan bara í ljós í mars þegar yfirmaðurinn verður búinn að púsla. Svo verður Þórður í 4 vikna samfelldu fríi og svo aftur í vikufríi þarna í ágúst, Stefán talar um að fara norður í sveitina í sumar og ætli ég verði ekki bara í fríi þegar Þórður er í fríi! Þá vitið þið það, öll fjölskyldan stefnir á sameiginlegt frí í viku í ágúst Glottandi

Ég fer út að skokka á morgun, ekki spurning....kvefið fer að heyra sögunni til Hlæjandi

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.