Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

þriðjudagspistill

29. janúar 2008 klukkan 11:04
Í morgun snerist kennslan um þróun skóga á Íslandi - allt frá Tertíer og Kvartíer, fram til  landnáms og þaðan fram á 19. öld. Síðan ræddi ég um ástand skóga heimsins í dag. Kom mér á óvart hvað þau vissu lítið, hélt að sumt sem mér finnst að allir eigi að vita, voru þau að heyra í fyrsta sinn. Þá er ég að tala svona almennt um landnámið og miðaldir. Þetta er semsagt það að vera kennari - koma hlutunum til skila.

Annars er þetta allt að koma hjá mér, ég er enn að sníta mér og ég held ég sé farin að sjá fyrir endann á því!
Ársreikningur badmintondeildarinnar er klár.... jebbs ekkert smá feginUllandi

Jæja best að fara að gera eitthvað, þarf að vinna smá greinargerð vegna ákveðins verkefnis í vinnunni (sko aðalvinnunni).

Hafið góðan dag Hlæjandi
Eins og hið íturvaxna íslenska barrtré.
#1
29. janúar 2008 klukkan 19:46

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.