Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Nýtt markmið!!!

28. janúar 2008 klukkan 07:48

Þið sem hafið fylgst með mér hér á blogginu eru sjálfsagt búnir að átta sig á að ég kem engu í verk nema ég setji mér markmið....já svona er ég nú bara!
Nú er vika síðan ég byrjaði í skokkhópnum (sem NB skokkar saman 2svar í viku)  - nýja markmiðið tengist skokkhópnum, SKO þann 18. febrúar ætla ég að skokka (reyndar bara jogga mjög hægt) stóra hringinn hér á Hvanneyri. Upphafs og lokapunktur íþróttahöll Hvanneyrar. Með því að misnota aðstöðu mína hér í vinnunni og mæla vegalengdina í gis-inu þá eru þetta svo mikið sem 4445 metrar.
Þetta er markmið sem ég ætla að ná..... Svalur

 
Anna Lísa
Flott hjá þér, ég veit að þú nærð þessu með léttu

Kv ALH
#1
28. janúar 2008 klukkan 13:36
Aðalheiður SigurðardóttirÞað er ekki að spyrja að kraftinum í þér kona
#2
28. janúar 2008 klukkan 13:49
Vá, hvað þú ert dugleg. :) Það er svo gott að skokka og mjög hvetjandi að vera í svona skokkhóp - svo er ótrúlegt hvað þolið er fljótt að koma.

Skemmtu þér vel og gangi þér vel í skokkinu :)
#3
28. janúar 2008 klukkan 14:44

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.