dararrarć
27. janúar 2008 klukkan 13:47
Síðan í gær hefur ekkert rosalega mikið gerst....við borðuðum þorramat í gærkvöld,mmmmmm rosalega gott; saltkjöt, sviðasulta, hangikjöt, harðfiskur, súrmatur (lundabaggar, bringukollar, hrútspungar, slátur, hvalur), hákarl, rófustappa, kartöflustappa, flatkökur og vestfirskar hveitikökur!!!! Já þetta var slatti enda þurfti maður að vanda sig svo maður gæti smakkað á öllu 
Eftir að hafa borðað yfir mig, þá missti ég röddina og varð djö.... slöpp. Í dag er ég mikið hressari og bind vonir við að hámarki þessa krankleika hafi verið náð í gærkvöld! Held þetta sé ekki flensa sem hefur verið að herja á mig heldu ósköp venjulegt kvef.
Jæja, best að koma sér að verki, bókhald badmintondeildarinnar bíður....vonandi í síðast skipti - ef ég er heppin!