Vottum ykkur samúð vegna frænku ykkar.. alltaf erfitt, sérstaklega þegar svona ungt fólk á í hlut...
Hafið það gott og góða helgi :)
Silla og fjölsk
Föstudagur
25. janúar 2008 klukkan 09:33
Síðustu dagar hafa snúist um vinnu, lærdóm og veikindi. Ætli næstu dagar muni ekki snúast um það sama að undanskildum veikindum, sjö níu, þrettán! Við Þórður erum allavega ekki búin að leggjast og það stendur heldur ekki til - ef við fáum að ráða.
Því miður þá fær maður ekki að ráða hvernig hlutirnir fara. T.d. í dag verður elsku frænka og jafnaldra Hauks borin til grafar, fertug móðir fjagra barna og eiginkona. Blessuð sé minning hennar. Lífið er ekki sanngjarnt og svo er ég að kvarta yfir flensuskít. Úti er vitlaust veður og við sjáum ekki að við komumst að jarðaförinni sem er ferlegt, við á Hvanneyri og jarðaförin á Selfossi. Var að skoða sálmaskrána en hún er aðgengileg á heimasíðunni þeirra og það þyrmdi yfir mig. Það virðist þurfa svo mikið til að minna mann á að þakka fyrir allt sem maður hefur og það geri ég svo sannarlega.
Fögnum lífinu!

Silla
#2
25. janúar 2008 klukkan 17:48
Magga
Samhryggist innilega. Ótrúlegt hvað það þarf oft mikið til að minna mann á það hvað maður er í raun heppinn.
Kv. Magga
Kv. Magga
#3
26. janúar 2008 klukkan 21:05
Samhryggist ykkur með frænku, blessuð sé minning hennar.