Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Flensuskítur

23. janúar 2008 klukkan 09:27
Flensan er komin í bæinn Fýldur Haukur og Stefán Snær liggja heima og eru bara mjög slappir. Stefán lá skjálfandi undir sæng í gær þegar ég kom heim úr vinnu og leið virkilega illa. Ég vissi ekki hvort Haukur var svo slappur eða hvort þetta væru vonbrigði með leikinn  (handbolta) sem komu svona fram....en svo í morgun þá var hann rámur og með hita.
Við Þórður Logi erum spræk, sjö, níu, þrettán! Ég í vinnunni og hann í leikskólanum.
Dagurinn í dag er bara ósköp venjulegur vinnudagur, og svo á að læra eftir vinnu.
Þetta segir stjörnuspáin í dag:
Vatnsberi: Það sem þú segist ætla að gera er áríðandi, jafnvel þótt þú segir bara sjálfum þér það. Sérstaklega þá. Haltu öll loforðin sem þú gefur sjálfum þér.
Einmitt, ég ætla að vinna og læra í dag, það verður kjúlli matinn í kvöld og svo langar mig alveg óskaplega í spinning eða í einhverja hreyfingu í dag!
Eigið góðan dag Hlæjandi
Aðalheiður SigurðardóttirFlensu samúðarstraumar
#1
23. janúar 2008 klukkan 16:13
ooo flensan ...skrítið þessi árvissi faraldur...... frábært væri ef janúar kæmi alltaf með svona megrunnarfaraldur;)... allir sem þurfa á að halda léttust ...hinir sem ekki þurfa létu sprauta sig ...við létting... er það ekki góð hugmynd?.... gangi þér vel... knús....
#2
23. janúar 2008 klukkan 18:45
Hæ hæ mikið er langt síðan ég hef kíkt á þig vonandi gengur þetta fljótt yfir, ég hef ekki orðið veik síaðn í feb í fyrra en ég er lögst núna með beinverki og hita. Gangi þér sem allra allra best. knús
#3
24. janúar 2008 klukkan 20:57

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.