Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

skokkerískokk

21. janúar 2008 klukkan 14:09
Í dag, mánudaginn 21. janúar byrja ég í skokkhóp!!! Skokkhópurinn skokkar saman tvisvar í viku og gerir æfingar - bara allt jákvætt um það að segja. Ég kemst nefnilega því miður ekki reglulega í spinning á morgnana eins og ég hefði viljað vegna þess að Haukur hefur þurft að fara snemma í vinnu ....og einhver verður að koma drengjunum á fætur.
Þannig að það sem eftir er vetrarins fer ég 2 sinnum í skokkhóp og 0-3 sinnum í spinning í viku. Þannig að reglubundin hreyfing verður aldrei sjaldnar en 2 sinnum og í allra mesta lagi 5 sinnum.
Held þetta sé alveg ágætt, maður verður að vera í góðu formi í Skotlandi í byrjun maí og svo allar hinar gönguferðirnar sem eru á teikniborðinu...uss, uss, uss.
Já og meira uss, uss, uss, er gjörsamlega með hreyfinguna á heilanum  (þeir sem hafa ekki tekið eftir) og allar gönguferðirnar sem stefnt er á í sumar uss, uss, uss! Eigum við að ræða það eitthvað frekar? - nei ég hélt ekki! (mín er sko nýfarin að horfa á Næturvaktina á dvd og er BARA búin með þrjá fyrstu þættina....HEPPIN Hlæjandi)

Ekki slæm stjörnuspáin í dag.....
Vatnsberi:
Þú ert sérfræðingur í að selja, þú getur jafnvel selt bjartsýni eða trú á mannkynið. Þú lýtur ekki framhjá staðreyndum en endurkastar þeim þannig að þær fái betri mynd á sig.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.