Er ekki í lagi?
20. janúar 2008 klukkan 11:17
Stundum finnst mér eins og það sé ekki í lagi með fólk....verð alveg ótrúlega hneyksluð á hugdettum þeirra og skil bara ekki hvað það er að fara. Ég lendi oft í þessu en dettur ekki í hug að það sé ég sem sé undarleg....nei, nei, það getur bara ekki verið. Ég sannfærðist enn meira um það að það sé alveg í góðu lagi með mig í morgun þegar ég las fréttirnar á mbl.is. Þar er frétt sem fjallar um þá hugmynd að jarða Bobby Fischer í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum!!!! Hvað er í gangi?????? Ég trúi ekki að ég sé svona skrítin að finnast þetta út í hött......eða er það málið er íhaldssemin og afturaldssemin í mér alveg að ganga út í öfgar?
Silla
ALLLLLLLLLLLLLLLLVEG sammála þér Sigga mín.. það var eitt að jarða karlinn á Íslandi en í þjóðargrafreitinum á Þingvöllum fannst mér aðeins of gróft.. ég sem íslenskur ríkisbúi segi NEI TAKK... þar ætti bara að jarða ÍSLENSKT heiðursfólk... eða hvað?
#1
20. janúar 2008 klukkan 11:28
Magga
Sammála síðasta ræðumanni...ef það ætti að grafa einhvern þar þá eru það fyrrverandi forsetar eða svoleiðis...ekki einhvern sérvitring sem bjó í örfá ár hér á Íslandi. Vilja þá ekki allir sem fá íslenskan ríkisborgararétt, vera jarðaðir þar?? Ég bara spyr.
Kv. Magga
Kv. Magga
#2
20. janúar 2008 klukkan 11:39
Kannski erum við bara að misskilja málið er þetta ekki bara ÞJÓÐA-grafreitur ekki þjóðaR..Þarna verður jarðsettur einn af hverri þjóð...#3
20. janúar 2008 klukkan 15:10
Rakel
Málið er jafnvel enn fáránlegra þegar það virðist vera tillaga "vina og stuðningsmanna" að grafa manngreyið þarna. Hvað með nánasta fólk mannsins? Hefur það ekkert að segja? Ég held að einhver hafi farið frammúr sér í þessu máli!!!
#4
20. janúar 2008 klukkan 18:47