Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Fer ekki á Kaffi Krók um helgina!!

18. janúar 2008 klukkan 09:55
Kaffi Krókur brann í nótt - hræðilegt, vonandi verður hann endurbyggður. Ferlegt upp á götumynd Aðalgötu að hafa engan Kaffi Krók!
Fyrir rúmlega tíu árum vann ég þar um helgar, þurfti svo að hætta þar þegar ég fór að vinna á sambýlii. Það var alltaf mikið fjör á okkur starfsfólkinu, mér er sérstaklega minnisstætt kvöldin/næturnar þegar við vorum búin að loka og þurftum að þrífa og gera allt fínt að þá voru græjurnar settar í botn og það var sungið með.... við vorum þarna ég, Arndís, Ásta Búa, María Björk og Svanfríður....... vá hvað það var mikið fjör hjá okkur Hlæjandi OG allir kokteilarnir sem maður lærði að búa til....að fólk skuli geta drukkið svoleiðis óþverra - ég er nú meira fyrir áfengi sem ekki er blandað saman við eitthvað annað Glottandi 

Í gær fór ég sem foreldri með nokkrum leikskólakennurum á stuttan fyrirlestur um tákn með tali - ótrúlega sniðugt. Þórður Logi er svolítið seinn til tals og það virðist vera að hann sé einn af þeim sem geti nýtt sér tákn með tali og þá þarf maður að vita eitthvað um hvað málið snýst. Því ekki notar hann það við þá sem kunna ekki eða nota það ekki á móti.

Jæja, það er föstudagur í dag. Í kvöld förum við fjölskyldan í matarboð þar sem þemað er indverskur matur. Ætla síðan að reyna að nýta helgina í námið - lesa eins og 1-2 kafla (eða bara summary-ið) í þroskasálfræðinni. Síðan þarf ég að undirbúa mig fyrir kennsluna í næstu viku.

Haukur og Stefán Snær eru að gæla við að fara suður til Reykjavíkur á morgun, Stefán Snær þarf að komast í TBR-húsið og kaupa sér nýjan badmintonspaða og eitthvert badmintondót fyrir afmælispeninginn. Einnig þarf hann að kíkja í eina búð svo hægt sé að klára að gera öskudagsbúninginn kláran.....betra að vera tímanlega í því. Svo er draumurinn að skella sér líka í bíó.

Við Þórður Logi verðum þá í rólegheitum heima og ég reyni að lesa....... Ég fer semsagt ekki norður um helgina á Kaffi Krók Fýldur

 
Elín
Heppin þú að sleppa því að fara á Kaffi Krók, það mundi trúlegast gusta óþarflega mikið um þig þar... Hafðu góða helgi.
#1
18. janúar 2008 klukkan 15:35
 
Silla
Já hræðilegt með kaffi krók... maður varð næstum því klökkur þegar maður las fréttirnar í morgun.. vonandi verður þetta hús bara endurreist með pompi og prakt!!!
Já tákn með tali er gríðarlega skemmtilegt og t.d í leikskólanum sem Magnea Dís er á þar eiga öll börnin sín tákn sem eru sýnd með nöfnunum við hólfin þeirra og svo er þeim kennt að alltaf þegar þau kynna sig þá kynna þau sig með tákni.. massa sniðugt!!
Góða helgi.. Silla.
#2
18. janúar 2008 klukkan 19:12

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.