Hæfileikar eða ekki....
11. janúar 2008 klukkan 10:04
Þetta segir stjörnuspá mbl.is um mig í dag:
Vatnsberi: Þótt þú fáir allt sem þú vilt, og virðingu í kjölfar viss afreks, þá er mjög áríðandi að þú gerir þér grein fyrir að þú ert mun meira en hæfileikar þínir.
Ókey!!! þá veit ég það.......þetta gæti brotið mig niður algjörlega - en kannski líka aukið sjálfstraustið - það er kannski ekki alslæmt að vera hæfileikalaus??? Eða er meiningin með þessu sú að ég þarf að hugsa um meira en það sem ég er góð í ...... t.d. hef ég ekki staðið mig sem húsmóðir undanfarið (þið ættuð að sjá þvottafjallið mitt) svo hefur ryksugan rykfallið inn í þvottahúsi, já og ekkert gengur mér að baka fyrir afmælið hans Stefáns og þar er ég með STÓRT samviskubit.
Jæja best að fara að vinna - verkefnin bíða eftir því að ég, þessi hæfileikalausa, klári þau!
Góða helgi.

Mikið er ég glöð að sjá að ég er ekki ein um að eiga þvottafjall hehehe... ótrúlegt hvað ég get hummað það lengi fram af mér að setja í þvottavél... og bara þrífa hér heima... tók reyndar ágætan dag í dag og tók niður jólin og lét Adda setja þau uppá loft og þurrkaði svo af og skúraði og setti í eina þvottavél;) Enda get ég ekki þvegið mikið meira en eina vél á dag þar sem ég á ekki þurrkara - ennþá - og hef bara takmarkað snúrupláss hér inni:D Fínt að hafa svona afsökun;)
#2
12. janúar 2008 klukkan 20:45
Sammála þessu með ágæti stjörnuspárinnar - og þín kæra Sigga mín.......þetta þýðir að þú hefur frábæra hæfileika - en svo miklu miklu meira en það!!!
takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig - og bara fyrir að vera þú !!!!
kv. Ása Dóra

#3
18. janúar 2008 klukkan 07:23
Horfðu á björtu hliðarnar Sigga mín!
Knús, Magga...