Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Staðlotan búin

08. janúar 2008 klukkan 22:00
Þá er staðlotan í skólanum búin og framundan er annasamur tími. Ég ætla að reyna að taka tvo fimm eininga kúrsa annar er "nám og þroski, barna, unglinga og fullorðinna" og hinn er "kennslufræði greinasviða". Hvoru tveggja spennandi en þó verð ég að viðurkenna að svona kjaftafög eins og þroskasálfræðin eiga nú ekki hug minn allan en kannski breytist það viðhorf á þessari önn. Skil bara ekki svona kjaftafög, það er endalaust verið að fjalla um hina og þessa kenninguna en engin niðurstaða.........- við raungreinafólk við viljum niðurstöðu!!!!

Við höfum haldið alveg ótrúlega vel á heilsuspöðunum - við höfum verið af fara í gönguferðir á kvöldin, stuttar en góðar. Ég segi við, því Haukur hefur verið að taka sig í gegn núna - semsagt sykurinn BURT!!!!!!
 
Magga
Þið eruð dugnaðardingulhörpur, bæði tvö!! Eigið eftir að taka ykkur vel út á Krít í ágúst!! :)

Kv. Magga
#1
09. janúar 2008 klukkan 17:50

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.