Heyrðu krakkinn er snilli. Skörpustu menn sem ég þekki kæmust ekki eins vel að orði eins og þessi ungi piltur í lýsingum sínum...bara fyndið.
Kv. Edda
Ýmislegt framundan og sjónvarpsstjarnan.....
04. janúar 2008 klukkan 09:32
Ég ætla að byrja á því að þakka fyrir öll "commentin" og "kvittin" í gestabókina sem hér hafa verið rituð - frábært að vita af ykkur þarna úti 
Helgin framundan gæti orðið annasöm.
Laugardagur: Jólaballinu sem átti að vera hér þann 30. des var frestað og verður á morgun, gömlu íslensku jólasveinarnir mæta og svo koma allir með eitthvað á hlaðborð.
Sunnudagur: Ég geri ráð fyrir að taka niður jólaskrautið og síðan ætlum við að borða hangikét með öllu tilheyrandi. Þá er væntanlega brenna rétt hjá Mótel Venus um kvöldið og vonandi verður bara veðrið skaplegt!!!
Eftir helgi er staðlota í skólanum, ég verð á fyrirlestrum í þroskasálfræði barna, unglinga og fullorðina á mánudag og á þriðjudag verður áherslan öll á kennslufræði greinasviða.
Í millitíðinni þarf ég að fara á fund á kaffihúsi einu í borginni þar sem skrafað verður um væntanlega gönguferð í skosku hálöndunum
Það verða semsagt nokkrar ferðirnar á milli Hvanneyrar og Reykjavíkur í næstu viku - ekki mjög spennandi! Ég ætla rétt að vona að veðrið verði almennilegt annars fer ég ekki fet!
En að allt allt öðru, sáuð þið Kastljósið í gær? Mæli með því að þið skoðið það á netinu, það var viðtal við Þórð, son Önnu Lísu (vinkonu) en hann fór með kvæði og rímur og spjallaði um goðafræði og forna kappa! Algjör snilld og alveg óhætt að kalla Þórð sjónvarpsstjörnu.

Edda
#2
04. janúar 2008 klukkan 22:53
ha ha ha - já Þórður ótrúlegur........
heyrðu - hefurðu smakkað súkkulaðibúðin frá Oetker?? Hann er tær snilld - gerum okkur svona við gott tækifæri mmmmmm......
kv. Ása Dóra
p.s. ég bjalla í þig í fyrramálið og reyni að plata þig á göngu.......held að hausinn sé að lagast ;o)

#3
05. janúar 2008 klukkan 01:01
Vá hann er yndislegur þessi Þórður... þvílíkur snilli:D
Gleðilegt ár annars og hamingjuríkt nýtt ár... dugnaðurinn í þér að vera alltaf í þessum göngum... ef maður hefðu nú svona mikinn aga:S
Sjáumst vonandi í sumar... og það eru margar skemmtilegar gönguleiðir hér við Dalvík;)

#4
05. janúar 2008 klukkan 13:20
Sá Þórð...hann er bara snillingur þessi drengur! :) Ekkert smá flott hjá honum!
Kv. Magga