Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Stanslaus gleði og....klór í haus!

03. janúar 2008 klukkan 15:09
Já, það var mikil gleði heima hjá okkur í gær. Stefán Snær kom heim eftir útlegð (var yfir hátíðirnar í Danmörku) og við réðum okkur ekki fyrir kæti. Þórður Logi sleppti sér alveg, elti þann stóra á röndum og vildi helst fá að sofa inni hjá honum, saknaði stóra bróður greinilega MJÖG mikið.
Þetta voru bóka, fata og dvd jól hjá Stefáni (og líka ipod-jól) - sex bækur komu og ég er í þann vegin að byrja að lesa eina þeirra "Rúnatákn" heitir hún.

Í gær eldaði ég fisk.....og það voru allir svo ánægðir með það Glottandi

Núna er ég að undirbúa mig fyrir kennsluna en ég ætla að kenna tveggja eininga áfanga í bændadeild nú á vorönn, þessi áfangi heitir "nytjaskógrækt" púff og ég veit ekki hvernig ég á að geta haft allt þetta efni í aðeins tveggja eininga áfanga...klór í haus! Ég gæti tekið bara fyrir skógarvistfræði og ég færi létt með að fylla þennan kúrs bara með því efni......meira klór í haus!
 
Magga
Sjúkkitt!! Fyrst þegar ég las fyrirsögnina þá hélt ég að það væri komin lús á heimilið!! En...gott að þetta er klór af öðrum ástæðum.

Annars efast ég ekki um að þú eigir eftir að rúlla þessari kennslu upp...eins og öllu öðru sem þú gerir... :) Er ekki bara málið að taka það mikilvægasta úr efninu og reyna að festa það eins og hægt er í heilum nemenda? Kannski er þetta bara allt jafn mikilvægt...hef ekki hundsvit á þessu...

Kv. Magga
#1
03. janúar 2008 klukkan 16:43

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.