Skil sko vel hvað þú ert að meina !! og er hjartanlega sammála þér með áramótin. Nú líður fljótlega að því að sólin fari að skína á okkur aftur...
Sjáumst
Tedda
millihátíđablogg!
28. desember 2007 klukkan 09:10
Jæja, við höfum haft það alveg aldeilis fínt hér á Hvanneyri um jólin. Ótrúlegt en hér voru hvít jól,frábært! Haukur þurfti að rjúka til og moka göturnar hér því það var bara kominn þónokkuð mikill snjór.
Fórum ekki mikið, Þórður var hálflasinn á jóladag svo við héldum okkur að mestu inni við. Við Þórður misstum því af hangikjötsveislunni á jóladagskvöld en okkur hafði verið boðið til Ingu og Kela, Haukur var okkar fulltrúi þar.
Stefán Snær hefur það fínt í Danaveldi sem er bara gott en ég er svo eigingjörn og finnst vanta hluta af mér, kvíði hálfpartin fyrir áramótunum, við bara þrjú...... Ég er alltaf hálfklökk um áramótin, ég veit hvernig árið sem er að líða hefur verið og fram undan er ár sem ég veit ekkert hvernig verður....æi ég get ekki alveg lýst þessu með orðum en kannski skiljið þið hvað ég meina. En mér liggur við að segja að mér finnist mikilvægara að fjölskyldan sé saman á áramótunum.

#2
28. desember 2007 klukkan 11:39
Sjáumst á nýju ári.
Koss og knús
Elín