Þetta hefur aldeilis verið skemmtilegt ár hjá ykkur þar sem allir eru á ferð og flugi... Sendum ykkur bestu jólakveðjur frá Malmö..
Guðrún og Valdi
Jólakveðja
21. desember 2007 klukkan 13:28
Kæru ættingjar og vinir.
Þá er enn eitt árið að líða, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Eins og gengur þá hefur árið 2007 verið ár sorgar og missis og gleði og hláturs. Já, svona er lífið og ekkert annað en að sætta sig við það eins og það er, muna að njóta líðandi stundar og horfa á björtu hliðarnar eins og Pollýanna.
Árið 2007 er í hugum fjölskyldumeðlima á Túngötu 19 ár ferðalaga og útivistar. Snemma á árinu var farið að huga að sumrinu. Haldinn var fjölskyldufundur og skrifuð niður markmið....já á tíu fjöll skyldi fara þetta árið!! Það var síðan í maíbyrjun að farið var á fyrsta fjallið og svo koll af kolli;
Um miðjan ágúst var farin ferð á vegum Vesturlandsskóga (vinnustaðurinn minn) með í för voru skógarbændur á Vesturlandi ásamt farastjóra og bílstjóra, alls 37 manns. Þetta var hin skemmtilegasta ferð. Þið sem hafið ekki komið til Skotlands – ég mæli með því. Held ég hafi aldrei náð að heillast að neinu landi eins og Skotlandi.....það er bara allt!
Kæru vinir, við sendum ykkur okkar bestu óskir um gleðileg jól og gæfuríks komandi árs. Við þökkum allt gamalt og gott og vonandi sjáumst við sem flest á næsta ári. Það eru alltaf allir velkomnir til okkar! Bestu kveðjur Sigga Júlla
p.s. það er komið nýtt albúm sem heitir "Árið 2007" þar eru heilar fjórar myndir!!!!
Þá er enn eitt árið að líða, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Eins og gengur þá hefur árið 2007 verið ár sorgar og missis og gleði og hláturs. Já, svona er lífið og ekkert annað en að sætta sig við það eins og það er, muna að njóta líðandi stundar og horfa á björtu hliðarnar eins og Pollýanna.
Árið 2007 er í hugum fjölskyldumeðlima á Túngötu 19 ár ferðalaga og útivistar. Snemma á árinu var farið að huga að sumrinu. Haldinn var fjölskyldufundur og skrifuð niður markmið....já á tíu fjöll skyldi fara þetta árið!! Það var síðan í maíbyrjun að farið var á fyrsta fjallið og svo koll af kolli;
Varmalækjarmúli, Hestfjall, Brekkufjall, Hafnarfjall, Eldborg, Dragafell, Gvendarskál, Valahnjúkur og svo voru farnar gönguferðir upp fyrir Brekkufjallið (upp í Skarðsheiðina) og yfir Fimmvörðuháls. Stefán Snær fór ekki með yfir Fimmvörðuháls og Þórður Logi fór aðeins í eina fjallgöngu í sumar en stefnir á fleiri á næsta sumri! Markmiðið náðist ekki hjá fjölskyldunni en kennum við versta hausti sem komið hefur í manna minnum á Vesturlandi en frá ágústlokum og þar til í dag hefur gegnið á með roki og rigningu – ekkert gönguveður semsagt.
Haukur fór í fótboltaferð í mars með góðum vinum Gísli Einars var skipuleggjandi ferðarinnar en hún var farin í tilefni af fertugsafmæli hans, farið var á tvo leiki West Ham- Middlesbro og Tottenham–Reading. Haukur sætti sig við að fara þó ekki væri um að ræða aðalliðið þ.e. Everton.Um miðjan ágúst var farin ferð á vegum Vesturlandsskóga (vinnustaðurinn minn) með í för voru skógarbændur á Vesturlandi ásamt farastjóra og bílstjóra, alls 37 manns. Þetta var hin skemmtilegasta ferð. Þið sem hafið ekki komið til Skotlands – ég mæli með því. Held ég hafi aldrei náð að heillast að neinu landi eins og Skotlandi.....það er bara allt!
Um miðjan nóvember fórum við í helgarferð til Prag, með vinum okkar (Sollu og Ísgeir), aldeilis frábær ferð.
Við áttum frábæra daga í Flatey með góðum vinum þeim Þórunni og Sigurjóni. Þórður Logi fékk að fara á sjóinn og sá fullt af fuglum, fiskum, steinum, skeljum og ígulkerjum – mikil upplifun. Við vorum nokkra daga ásamt Teddu vinkonu og sonum í Grunnuvík í Jökulfjörðum það var alveg frábært. Við mælum með því. Á leiðinni úr og í Grunnuvík stoppuðum við á Brjánslæk hjá fjölskyldu Teddu. Aldeilis fínt frí þetta.Stefán Snær átti gott sumar með pabba sínum en þeir voru saman hér á landinu í góðan mánuð en eins og þið vitið býr pabbi hans ásamt fjölskyldu í Danmörku. Stefán Snær ætlar að vera þar yfir jól og áramót þetta árið og er mjög spenntur.Lítið er búið að plana næsta ár nema jú að við Haukur ætlum okkur í nokkra daga gönguferð hér á Íslandi (margt kemur til greina), ég fer í gönguferð með vinkonunum í Skotlandi og síðan á að fara eitthvert í tilefni af stórafmæli húsbóndans í haust, það er allt í mótun (Mallorca, Tenerife, Krít???)Stefán Snær er í 6. bekk og æfir badminton í frístundum og Þórður Logi er á leikskólanum Andabæ. Haukur vinnur alltaf hjá Landbúnaðarháskólanum og ég hjá Vesturlandsskógum. Haukur er að bæta við sig menntun í vélvikjun og klárar það í vor og ég byrjaði í kennsluréttindanámi við KHÍ í haust. Það er semsagt nóg að gera hjá okkur!Kæru vinir, við sendum ykkur okkar bestu óskir um gleðileg jól og gæfuríks komandi árs. Við þökkum allt gamalt og gott og vonandi sjáumst við sem flest á næsta ári. Það eru alltaf allir velkomnir til okkar! Bestu kveðjur Sigga Júlla
p.s. það er komið nýtt albúm sem heitir "Árið 2007" þar eru heilar fjórar myndir!!!!
Þetta ár hefur verið viðburðarríkt hjá ykkur, alltaf nóg að gera. Ég sendi .ér og fjölskyldu þinni mínar bestsu óskir um gleðileg jól og farsældar á komandi ári með þökk fyrir frábæran stuðning þinn á árinu sem er að líða. Gangi þér vel dúllan min á nýjy ári.
kveðja
Spekoppur
kveðja
Spekoppur
#3
25. desember 2007 klukkan 20:02
Kærar kveðjur til fjölskyldunnar með ósk um gleðileg jól..
sjáumst kannski eitthvað um jólin.. aldrei að vita hvað fólki dettur í hug að gera í fríinu hehehhee
Hafið það sem allra best og Stefán, góða ferð og góða skemmtun í DK
kv. Silla.