síđasti vinnudagur fyrir jól
21. desember 2007 klukkan 08:54
Var mætt í vinnuna í morgun um hálf sjö, var að ná að klára ákveðið verkefni svo núna ætla ég að rölta heim á leið til að vekja Stefán en hann fer suður um hádegi og út til Danmerkur í kvöld. Skelli mér svo aftur í vinnuna og vinn til ca 4....og þá er JÓLAFRÍ!!!!!
Þið vitið ekki hvað ég á eftir að sakna Stefáns Snæs en ég hugga mig við það að þetta verður heilmikið ævintýri fyrir hann.
Ég á ekki eftir að gera neitt sérstakt fyrir jólin, bara taka smá til, þurrka af og skúra. Þannig að ég sé fram á að komast í laugardagsspinning og aðfangadagsspinning. Svo ætla ég bara að taka því rólega, álagið er búið að vera ansi mikið undanfarna mánuði og því nauðsynlegt að fá hvíld.