Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Jólakortaógöngur og skipulagsleysi!!!!!

20. desember 2007 klukkan 09:09
Ég dreif í að skrifa á jólakortin í gær, á síðustu stundu ens og svo ótrúlega oft áður. Ég er með allt of lítið skipulag á hlutunum þegar ég skrifa á kortin, ég er ekki með jólakortalista í tölvunni eða neitt svoleiðis.....nei nei ég er bara með gömlu kortin frá í fyrra. Þannig að þeir sem sendu okkur kort í fyrra fá kort núna. Nú brá mér heldur betur í brún því þegar ég var að skrifa á fínu kortin mín þá bara kláruðust þau!!!! Þannig að þeir sem eru svo ótrúlega óheppnir fá öðruvísi kort. Lærdómur: Alltaf að telja jólakortin frá því í fyrra áður en maður pantar jólakort EÐA gera fínan jólakortalista strax eftir áramót og byrja að skrifa á jólakortin í nóvember.
Humm, jólakort já, ég er að verða komin með gömlu ættingjana en það fer eftir atvikum hvort vinir og kunningjar fá kort þetta árið.
Með jólakveðjum til þín frá gamla sveppnum
#1
20. desember 2007 klukkan 09:15

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.