Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

úthvíld og slök

17. desember 2007 klukkan 13:50

Ég er svo slök og úthvíld núna að það er ekki hemja!
Vorum í bústað um helgina sem var algjört æði....REYNDAR var ég lungan úr laugardeginum í félagsheimilinu Brún að undirbúa og vinna í erfidrykkju en það var líka bara gaman og lærdómsrík reynsla Hlæjandi já það þýðir ekki annað en að styðja sig við hana Pollýönnu Glottandi Feðgarnir ásamt Þórunni, Torfa og börnum skemmtu sér vel og vorum búin að elda dýrindis mat um kvöldið þegar ég kom dauðþreytt eftir trampið um daginn.

Hvað á ég svo eftir að gera fyrir jól??
Það er nú svosem ekkert sérstakt framundan núna, ætla að reyna að skrifa á blessuð jólakortin í kvöld og kannski að prufukeyra nýju fínu eldavélina mína sem ég var að kaupa núna í morgun Hlæjandi Búin að baka eina sort í þeirri gömlu bæti kannski tveimur sortum við ef ég nenni.....og þá í þeirri nýju Hlæjandi
Ég á eftir að kaupa þrjár jólagjafir og stefni að því að gera það fyrir helgi. Síðan eigum við eftir að kaupa jólatré, setja upp nokkrar seríur og versla í matinn.

Fór í spinning í morgun og ætla að vera sem mest "dönsk" þessa viku. Saumaklúbbskerlurnar ætla að koma til mín annað kvöld.....ætla að bjóða upp á eitthvað hollt og ekkert annað!

 
Drekinn stóri
Dásamlegt að fara svona í bústað með familíunni, gerði það eina helgi núna um daginn, það var alveg endurnærandi á líkama og sál (ja allavegna sál, ég missti mig aðeins í namminu svo það gerði kannski ekki svo gott fyrir líkaman).

Frábært hjá þér hvað þú ert þú búin að vera voðalega dugleg í spinning og dönskulegheitunum, veitir ekkert af svona rétt fyrir jólaboðin að taka svolitla hollustu á þetta.

Kveðja Drekinn
#1
17. desember 2007 klukkan 16:07
Aðalheiður Sigurðardóttir kannski að prufukeyra nýju fínu eldavélina mína sem ég var að kaupa núna í morgun . Við erum æði Sigga ég var að kaupa mér nýja eldavél líka og ef að mér skjátlast ekki keyptum við okkur báðar ískáp í fyrra á sama tíma haha hvað kaupum við næst
#2
21. desember 2007 klukkan 13:49

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.