Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

sykur ojojojojojojojojoj!

04. desember 2007 klukkan 18:44
Ég er nú ekkert svo skipulögð Anna Lísa (sjá komment við síðustu færslu).
Það er bara svo skrítið að ef ég skrifa eitthvað hér inn, hvað ég ætla að gera þá geri ég það...... þyrfti t.d. að skrifa hér að ég sé með ofnæmi fyrir sykri, að hann sé beinlínis banvænn EN ég geri það ekki því ég er á sætindaflippi núna. Mér líður eins og ég sé að bæta þvílíku á mig þessa dagana...."gleymi" að fara á vigtina í íþróttahúsinu....það er sko ekki í lagi með mann! Svo segi ég alltaf, nei nú er það 100% dagur og ok ég næ alveg 100% dönskum dögum en svo er það þessi bannsetti sykur - af hverju fæ ég mér alltaf....það er ekki eins og hann sé að fara eitthvað rosalega vel í mig, maginn í rugli og andlitið á mér er eins og á fílamanninum öll í rauðum flekkjum og upphleyptum í þokkabót... sem er bein afleiðing sykuráts.........HMHMHM HHEY!!! ÞAÐ KVEIKNAÐI LJÓS - ÆTLI ÞETTA SÉU OFNÆMISVIÐBRÖGÐ...JESS!

Á morgun tek ég mér frí í vinnunni til að geta lesið í ró og næði, því prófið skal tekið með glans....ég ætti kannski að montast aðeins núna, það er komin einkun í einu verkefni...sem gildir 15% ... 9,0 var það og það hópaverkefni þar sem aðrir tveir hópar dæmdu verkið....þessi einkun er vel yfir meðaltali en það var 8,4.

Úff þetta er nú meira bloggið, veð úr einu í annað - sem er reyndar ekkert nýtt með mig Hlæjandi
EN!!! Hvernig lýst ykkur á nýja bannerinn minn?? Takk Ása Dóra fyrir hjálpina Koss
 
Silla
Til hamingju með flotta einkunn.. vá sú byrjar vel hahaha
En þú kannski mannst að......... SYKUR KALLAR Á MEIRI SYKUR....
Sykur oj barasta.......... segi ég hahhahaha sit með Nóa Síríus rúsínupakkann, appolo lakkríspokann og kókflöskuna hahahhaa nei djók... var að koma úr rækinni rosa fersk hehehe
haltu áfram að vera dugleg!!!
Silla.
#1
04. desember 2007 klukkan 19:03
Til hamingju með árangurinn í verkefninu. Vonandi gengur þér vel í pófinu.
Ég þekki þetta með sykurfíknina. Jafnvel þótt manni verði ómótt og fái útbrot og kláða út um allt, þá étur maður þetta samt....ruglaðar....hehe. En batnandi mömmum er best að lifa, ekki satt?
#2
05. desember 2007 klukkan 15:23
Já þessi sykur er nú meira jukkið! Bara láta þetta vera eins mikið og hægt er :)

Bannerinn lítur vel út . Mjög jóló :) Gangi þér vel í prófalestri.
#3
06. desember 2007 klukkan 14:09
Frábær banner, þekki orðið hvar þessi fallegu fjöll eru. Til hamingju með frábæran árangur, meina prófin, ekki sykurinn. Þú getur þetta allt og líka að sleppa sykri, ég sleppi honum ekki þessa dagana því miður en svona er þetta víst bara.
#4
06. desember 2007 klukkan 19:26

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.